BAHÁ'Í SAMFÉLAGIÐ Á ÍSLANDI
              „Jörðin er aðeins eitt land og mannkynið íbúar þess.“ Bahá'u'lláh
 
 
 
 

 
SUMARSKÓLINN

Sumarskólinn verður á sama stað og í fyrra, þ.e. í Reykjaskóla í Hrútafirði dagana 3.–7. ágúst. Þátttakendum er velkomið að mæta upp úr klukkan fjögur á miðvikudeginum. Þeir hafa þá nægan tíma til að koma sér fyrir og borða kvöldmat áður en skólinn er settur klukkan 20:30. Skólanum lýkur svo um hádegi á sunnudag.

Aðalfyrirlesari á sumarskólanum í ár verður einn virtasti fræðimaður bahá'í trúarinnar, Moojan Momen. Með honum verður eiginkona hans Wendy Momen sem einnig er virtur fræðimaður og rithöfundar.

Skólastjórar og skipuleggjendur skólans eru hjónin Ólafur Haraldsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir.

Sumarskólasíðu í mótun má finna hér.

Myndir frá síðasta sumarskóla


 
 

Bahá'í listamenn um allan heim

Barbra Streisand: One God, One religion

Frá Bahá'í heimsmiðstöðinni í Ísrael



 

 

dagskra