Fréttir
Fréttasafn desember 2004
Tilkynningar
Erlent 30-12-2004 10:33
Ástralía – Nýtt samfélagsmynstur
Skoða nánarNýlega var haldin alþjóðleg ráðstefna í Sydney með rúmlega 1200 þátttakendum. Efni ráðstefnunnar var þjónusta við mannkynið í kjölfar þess að um heim allan taka þúsundir manns þátt í bahá’í námshringjum, helgistundum og barnakennslu sem stuða að slíkri þjónustu. Talsmaður ástralska bahá’í samfélagsins, Yvonne Perkins, útskýrði tilgang ráðstefnunar með vísun í þá staðreynd að bahá’í samfélög eru að þróa með sér starfsemi sem hefur andlegan þroska og mannauðseflingu meðal einstaklinga og samfélaga að markmiði.
Meira

 
Erlent 30-12-2004 10:12
Ísrael – Helgistaður opnaður að nýju
Skoða nánarEftir fimmtán ára samningaviðræður og ítarlega heimildavinnu hafa miklar endurbætur verið gerðar á fangaklefa Bahá’u’lláh í Akká og er hann nú í fyrsta sinn í rúman áratug opinn pílagrímum sem þangað koma til hugleiðslu og bænagjörðar. Framkvæmdir við endurbætur fangaklefans hófust um miðbik ársins 2003 eftir að leyfi var fengið frá stjórnvöldum. Þær stóðu yfir í rúmt ár undir handleiðslu bahá’í heimsmiðstöðvarinnar sem einnig fjármagnaði verkið. Þúsundir pílagríma sem árlega koma til Ísrael allsstaðar af úr heiminum eiga þess nú aftur kost að heimsækja þennan sögufræga stað sem Bahá’u’lláh var haldinn föngnum í þessari rammgerðustu virkis- og fangelsisborg tyrkneska heimsveldisins.
Meira

Innlent 28-12-2004 16:19
Beth McKenty á Íslandi
Skoða nánarÍslenska bahá’í samfélagið fékk góðan gest í byrjun desember þegar vestur-íslenskur kennari og blaðakona, Beth McKenty, kom til landsins ásamt dóttursyni sínum Guðmundi Aron McKenty. Beth, sem er 73 ára gömul, hefur undanfarin fimm ár rekið barna- og unglingaathvarf í bænum Iqaluit við Frobisher-flóa á Baffinslandi. Starf hennar þar hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli en sjálfsvígstíðni meðal unglinga í byggðum inúíta í norðausturhéruðum Kanada er með því hæsta sem þekkist í heiminum. Beth hefur virkjað börn og unglinga á Iqaluit-svæðinu í listnámi og hönnun af ýmsu tagi og sýningar á verkum þeirra hafa verið haldnar í Vancouver og víðar í Kanada. Meðan Beth dvaldi hér á landi hélt hún fyrirlestra um starf sitt í Hveragerði, á Akureyri og í bahá’í miðstöðinni að Öldugötu 2 í Reykjavík.
Meira

 
Innlent 28-12-2004 16:11
Íslenskur sjálfboðaliði í Kambodíu
Skoða nánarFyrsti íslenski sjálfboðaliðinn sem tekur þátt í þróunarverkefni á vegum bahá’í trúarinnar í suðaustur Asíu hélt til Kambodíu í lok október 2004. Þar tekur hann þátt í verkefninu “Von hjartans” (Hope for the Heart) sem CORDE-samtökin í Kambodíu hafa rekið frá árinu 1994. CORDE (Cambodian Organization for Research, Development and Education) var sett á fót að frumkvæði bahá’í samfélagsins í Kambódíu og er meginmarkmið þess að efla læsi og stuðla að aukinni menntun barna og unglinga í landinu. Íslenski sjálfboðaliðinn, Ólafur B. Eðvarðsson, starfar við
Meira





Um vefinn
Tæknilegar upplýsingar varðandi vefinn og staða hans.

Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Fréttirnar á þessari síðu eru unnar á vegum Andlegs þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi.
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is

Tilvísunarslóð: