Fréttir
Fréttasafn desember 2006
Tilkynningar
Erlent 31-12-2006 19:16
Yfirlýsingar Sameinuđu ţjóđanna frá 1981 um umburđarlyndi í trúmálum minnst í Prag
PRAG, 19. desember 2006 (BWNS) — Tuttugu og fimm ára gömul alţjóđleg yfirlýsing um trúarbragđa- og trúfrelsi hefur sama gildi í dag og hún hafđi ţegar kalda stríđiđ stóđ sem hćst — hugsanlega enn meira gildi — sögđu margir rćđumenn á ráđstefnu á vegum Sameinuđu ţjóđanna í Prag í lok nóvember.

Um 350 ţátttakendur á vegum um 60 ríkisstjórna, ýmissa deilda innan Sameinuđu ţjóđanna og margra ópólitískra samtaka — ţar á međal frá Alţjóđlega bahá'í samfélaginu — komu saman í Prag ţann 25. nóvember 2006 til ţess ađ minnast 25 ára afmćlis Yfirlýsingar um ađ upprćta umburđarleysi og misrétti á grundvelli trúarbragđa og trúar.
Meira

 
Erlent 31-12-2006 19:11
Sameinuđu ţjóđirnar lýsa yfir áhyggjum af mannréttindum í Íran
Sameinuđu ţjóđunum, 20. desember 2006 (BWNS) — Allsherjarţing Sameinuđu ţjóđanna samţykki 19. desember ályktun ţar sem lýst er yfir alvarlegum áhyggjum af stöđu mannréttindamála í Íran og sívaxandi afbrotum gegn írönskum bahá'íum.

Ályktunin var upphaflega samţykkt í nefnd ţann 21. nóvember síđastliđinn, međ 72 atkvćđum gegn 50 og 55 sátu hjá, og allsherjarţingiđ afgreiddi hana síđan ţann 19. desember.
Meira

Erlent 23-12-2006 14:46
Úrskurđur var bahá 'íum í óhag
Kaíró 16. desember 2006 (BWNS) — Í dag féll úrskurđur ćđsta stjórnsýsludómstóls Egyptalands um hvort bahá'íar eigi rétt á ađ fá trú sína rétt skráđa í opinber skjöl. Niđurstađan er ađ ekki er fallist á ţennan rétt. Máliđ hefur vakiđ mikla athygli og komiđ af stađ almennum umrćđum í Egyptalandi um trúfrelsi.

Í úrskurđinum felst ţví stuđningur viđ núverandi stefnu stjórnvalda sem neyđir bahá'ía annađ hvort til ţess ađ segja óstt til um trú sína eđa hćtta ađ nota opinber nafnskírteini. Ţessi stefna sviptir í raun bahá'ía í Egyptalandi flestum borgaralegum réttindum, ţar á međal er ađgangur ađ menntun, fjármálaţjónustu og jafnvel ţjónustu innan heilsugćslunnar.
Meira

 
Erlent 11-12-2006 13:03
Siđferđikennsla snemma á unglingsárum vekur athygli
Skođa nánarJENJAROM, Malasíu, 6. desember 2006 (BWNS) — Lim Jia Chin var hverfisbófi áđur en hann gerđist grćnmetiskaupmađur í afskiptu og niđurníddu svokölluđu Kínaţorpi um 55 km suđvestur af Kuala Lumpur í Malasíu.

„Ég var svo sannarlega illrćmdur, - flćktur í svik og slagsmál " segir Jia Chin, sem er núna um ţađ bil ađ yfirgefa táningsárin. Jia Chin ákvađ hins vegar ađ hćtta glćpsamlegu líferni sínu eftir ađ hafa fariđ á siđferđisnámskeiđ sem var kostađ af bahá'í samfélaginu á svćđinu.
Meira

Erlent 08-12-2006 12:06
Málflutningi bahá'í hjónanna í Egyptalandi lokiđ — dómskúrskurđur vćntanlegur 16. desember
Kaíró 3. desember 2006 (BWNS) — Lögfrćđingar bahá'í hjónanna, sem fara fram á ađ ţau fái ađ greina rétt frá trú sinni á opinberum skjölum, lögđu í gćr fram öll gögn í málinu fyrir fullskipuđum ćđsta stjórnsýsludómstól í Egyptalandi, en máliđ hefur komiđ af stađ miklum umrćđum um trúfrelsi í egypsku samfélagi.
Meira

 
Innlent 07-12-2006 17:30
Stofnfundur Samráđsvettvangs trúfélaga
Skođa nánarStofnfundur Samráđsvettvangs trúfélaga var haldinn föstudaginn 24. nóvember kl. 15.00 í Tjarnarsal Ráđhússins. Á stofnfundinum fluttu ávörp forseti Íslands, formađur mannréttindanefndar Reykjavíkurborgar og framkvćmdastjóri Alţjóđahúss. Guđrún Dögg Guđmundsdóttir, framkvćmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands stýrđi fundinum. Bjargrćđistríóiđ flutti sálm.
Meira





Um vefinn
Tćknilegar upplýsingar varđandi vefinn og stađa hans.

Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Fréttirnar á þessari síðu eru unnar á vegum Andlegs þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi.
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is

Tilvísunarslóđ: