Fréttir
Fréttasafn febrúar 2007
Tilkynningar
Erlent 28-02-2007 10:34
Byrjað að framleiða byggingareiningar í Bahá’í tilbeiðslumusterið í Suður-Ameríku
Skoða nánarTORONTO, Kanada, 19. febrúar 2007 (BWNS) — Arkitektar hins stórfenglega Bahá’í tilbeiðslumusteris sem byggt verður í Santíagó í Chíle hafa tilkynnt að byrjað sé að framleiða byggingareiningarnar, en margra mánaða byggingartilraunum í tölvulíkani er nýlokið.

Þessum áfanga var náð á sama tíma og eftirsóknarverð verðlaun voru veitt fyrir hönnun byggingarinnar, en frá því er greint í tímariti Arkítekta í umfjöllun þess um árlega hönnunarsamkeppni um framsækin verkefni. Byrjað var að veita þessi verðlaun árið 1954, en þau þykja einhver mesta viðurkenning sem hægt er að hljóta fyrir byggingar sem ekki hafa enn verið reistar.
Meira

 
Erlent 22-02-2007 10:03
Leikbrúðu-gíraffi heillar börnin í Eþíópíu
Skoða nánarADDIS ABBABA, Eþíópíu, 11. febrúar 2007 — Innfæddur skólakennari og amerískur tölvufræðingur giftu sig á dögunum og eignuðust í kjölfarið ungan gíraffa sem hefur náð að heilla börnin í Eþíópíu.

Tsehai er leikbrúða og stjarna í sjónvarpsþætti sem sendur er út á Ahmaric tungumálinu. Brúðan er skilgetið hugarfóstur hjónanna Bruktawit og Shane Etzenhouser.

Það eru þættir eins og „Sesame-stræti“ sem eru fyrirmyndin að leikbrúðþættinum „Tsehai elskar að læra“ sem er sérstaklega gerður til þess að hjálpa börnum og unglingum að lesa og til að auka hæfni sína almennt, þar á meðal ábyrga umgengni við umhverfi sitt. Og hinn forvitni og ævintýragjarni Tsehai lifir og hrærist svo sannarlega í tölvuteiknaðri veröld sem ætlað er að minna á eþíópískt umhverfi.
Meira

Erlent 04-02-2007 13:34
Lýðveldið Kongó gefur út frímerki í tilefni af alþjóðlega trúarbragðadeginum
Skoða nánarBRAZZAWILLE, Lýðveldinu Kongó, 31. janúar 2007 — Í þessum mánuði varð Lýðveldið Kongó annað ríkið í heiminum sem gefur út frímerki í tilefni af alþjóðlega trúarbragðadeginum, en hans er minnst árlega í fjölmörgum borgum og bæjum um allan heim.

Kynning á útgáfu frímerkisins var haldin í Brazzawille þann 20. janúar 2007 samkvæmt sérstakri dagskrá á alþjóðlega trúarbragðadeginum, en þar tóku þátt meira en 250 fulltrúar frá átta trúarsamfélögum, og hægt var að kaupa bæði frímerki og fyrstadagsumslög á staðnum.
Meira

 




Um vefinn
Tæknilegar upplýsingar varðandi vefinn og staða hans.

Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Fréttirnar á þessari síðu eru unnar á vegum Andlegs þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi.
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is

Tilvísunarslóð: