Fréttir
Fréttasafn mars 2007
Tilkynningar
Erlent 15-03-2007 09:06
Hulunni svipt af afstöđu stjórnvalda til brottvísana bahá’ía úr írönskum háskólum
Skođa nánarNEW YORK, 7. mars 2007 (BWNS) — Alţjóđlega bahá’í samfélagiđ hefur fengiđ í hendur skjal sem virđist stađfesta flárćđi íranskra stjórnvalda gagnvart bahá’í stúdentum sem reyna ađ afla sér ćđri menntunar.

Ađalskrifstofa Payame Noor Háskólans [í Íran] sendi skjaliđ — sem er dagsett 2. nóvember 2006 — til umdćmisútibúa skólans í hérađi. Í skjalinu er skýrt frá ţeirri stefnu stjórnvalda ađ bahá’í stúdentar „geta ekki látiđ innrita sig“ í íranska háskóla og ef ţeir hafa ţegar gert ţađ „á ađ vísa ţeim frá.“

„Ţetta skjal sýnir og sannar tvöfeldnina í afstöđu íranskra stjórnvalda til íranska bahá’í stúdenta,“ segir Bani Dugal, ađalfulltrúi Alţjóđlega bahá’í samfélagsins hjá Sameinuđu ţjóđunum.
Meira

 
Erlent 08-03-2007 22:20
Bahá'íar í Íran enn á ný andspćnis mismunun varđandi réttinn til ćđri menntunar
NEW YORK, Bandaríkjunum, 28. febrúar 2007 (BWNS) — Vaxandi fjölda bahá’ía sem hafa fengiđ inngöngu í íranska háskóla á ţessu ári hefur veriđ vísađ úr skóla, sem er áhrifamikil vísbending um ađ bahá’í háskólastúdentar í Íran ţurfi enn ađ ţola alvaralega mismunun og takmarkanir varđandi réttinn til ćđri menntunar.

Síđastliđiđ haust, eftir ađ bahá’íum hafđi veriđ bannađ ađ stunda nám í einka- og ríkisháskólum í Íran í meira en 25 ár, var 178 bahá’í háskólastúdentum leyft ađ hefja nám víđs vegar um Íran eftir ađ stjórnvöld breyttu um stefnu og felldu úr gildi kröfur um upplýsingar um trú viđkomandi á umsóknum og prófgögnum.
Meira

Erlent 08-03-2007 21:59
Bahá’í stúlkur flytja međ sér bođskap vonar á fund Sameinuđu ţjóđanna um stöđu kvenna
Skođa nánarNEW YORK, Bandaríkjunum, 25. febrúar 2007 (BWNS) — Međal ţeirra mörg hundruđ stúlkna sem heimsćkja Sameinuđu ţjóđirnar í ţessari viku til ţess ađ rćđa um vandamál sem stúlkubörn um allan heim standa andspćnis verđa nokkrar stúlkur međ öđru vísi afstöđu: trú ţeirra kennir ađ ţćr hafi jafnan rétt á viđ drengi.

„Hjá bahá’íum er ţađ grundvallaratriđi ađ komiđ verđi á jafnrétti milli kvenna og karla, og ekki hvađ síst á milli stúlkna og drengja,“ segir frú Fulya Vekiloglu, fulltrúi Alţjóđlega bahá’í samfélagsins hjá Sameinuđu ţjóđunum.

„Í heimi ţar sem trúarlegar hefđir eru oft undirrót misréttis er ţessi afstađa einstök í sinni röđ og nokkuđ sem ćtti ađ taka miđ af til framtíđar litiđ,“ segir Fulya Vekiloglu enn fremur, en hún veitir einnig forstöđu stofnun Bahá’í samfélagsins um framfarir og eflingu kvenna.
Meira

 




Um vefinn
Tćknilegar upplýsingar varđandi vefinn og stađa hans.

Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Fréttirnar á þessari síðu eru unnar á vegum Andlegs þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi.
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is

Tilvísunarslóđ: