Fréttir
Fréttasafn apríl 2006
Tilkynningar
29-04-2006 22:54
Aukin hætta steðjar að bahá’íum í Íran
Sameinuðu þjóðirnar, 20. mars 2006 (BWS) — Fulltrúar Alþjóðlega bahá’í samfélagsins lýstu því 20. mars sl. að mikil hætta steðjaði að bahá’íum í Íran. Yfirlýsingin kom í kjölfar tilkynningar frá fulltrúa Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir íranskra stjórnvalda gegn bahá’íum í Íran.

Í tilkynningunni lýsti umboðsmaður trúfrelsis hjá Sameinuðu þjóðunum, Asma Jahangir, yfir áhyggjum sínum varðandi leyniskjal sem yfirstjórn íranska hersins sendi 29. október 2005 til nokkurra stofnana í Íran.

Jahangir segir að í bréfinu, sem er stílað á ráðherra upplýsingamála, byltingarráðið og lögregluyfirvöld, komi fram að æðsti stjórnandi landsins, Ajatollah Khamenei, hafi fyrirskipað yfirstjórn hersins að fylgjast náið með bahá’íum í Íran og starfsemi þeirra. Jahangir telur að svona eftirlit feli í sér óásættanlega aðför að réttindum trúarminnihluta og upplýsinga sem aflað yrði með þessum hætti yrðu ef til vill notaðar til að auka misrétti og ofsóknum gegn bahá’íum.


Meira

 
18-04-2006 16:50
Bahá’í námshringir á Kistufelli
Skoða nánarSex Bahá’íar hófu yfirferð í Ruhi bók 2 í Kistufelli sl. fimmtudag, eða á Skírdag. Alls eru a.m.k. átta samverkamenn skráðir í námshópinn, þar af að minnsta kosti tveir sem þjóna sem leiðbeinendur. Fleira samverkafólk hefur þegar látið skrá sig í hópinn. Þar á meðal er fólk sem ekki er Bahá’íar, en Ruhi námsefnið sem er staðlað alþjóðlegt efni, er ætlað öllum jarðarbúum án tillits til þess hvort eða hvaða trú þeir játa.
Meira

Erlent 16-04-2006 19:32
Bahá’íar fá alþjóðleg verðlaun
Dallas, Texas, Bandaríki Norður-Ameríku, 7. apríl 2006 (BWNS) — Ellefu bahá’íar sem starfa að samskiftum á faglegum grundvelli unnu til 12 verðlauna sem Samskiptaráð trúarbragðanna (Religion Communicators Council) veitir fyrir framleiðslu upplýsandi efnis af ýmsum toga. Ráðið vinnur að auknum samskiptum og skilningi meðal trúfélaga.
Meira

 
03-04-2006 16:32
Sjónarmið Bahá’í trúarinnar kynnt í Rótarý
Eðvarð T. Jónsson hélt erindi hjá Rótarýklúbbi Mosfellssveitar þann 28. mars sl. Yfirskrift erindisins var „Nauðsyn og möguleikar á skilningi á milli trúarbragða í ljósi kenninga Bahá’í trúarinnar.“
Meira





Um vefinn
Tæknilegar upplýsingar varðandi vefinn og staða hans.

Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Fréttirnar á þessari síðu eru unnar á vegum Andlegs þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi.
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is

Tilvísunarslóð: