 |
Erlent 24-05-2007 18:21 Bahá’íar halda hátíðlegt afmæli bahá’í trúarinnar HAIFA, Ísrael, 21. maí 2007 (BWNS) — Þann 23. maí minnast bahá’íar þess og fagna að aðfaranótt þessa dags árið 1844 tilkynnti ungur maður í Persíu, Siyyid Ali-Muhammad, svo lítið bar á að hann væri Boðberi Guðs, kominn til þess að boða mannkyni öllu nýja öld, nýtt tímabil, sem spáð hefði verið fyrir um í ritningum kristinna manna, múslima og fylgjenda annarra trúarbragða.
Þessi dagur er fæðingardagur bahá’í trúarinnar í hugum bahá’ía. Meira
| | Erlent 21-05-2007 18:34 Jarðarför og minningarathöfn vegna andláts æðsta leiðtoga Samóaeyja APIA, Samóaeyjum, 14. maí 2007 (BWNS) — Ráðgert er að útför æðsta leiðtoga Samóaeyja, hins heiðraða Susuga Malietoa Tanumafili II, fari fram á vegum ríkisins þann 18. maí næstkomandi, og að haldin verði minningarathöfn í Bahá’í tilbeiðslumusterinu í nágrenni í Apia, höfuðborg Samóaeyja, þann 20. maí. Hans hátign, Susuga Malietoa Tanumafili II, lést á sjúkrahúsi í Apia að kvöldi 11. maí síðastliðinn.
Susuga Malietoa Tanumafili II, sem var fylgjandi bahá’í trúarinnar, var 94 ára gamall þegar hann lést og einn af þeim konungum í heiminum sem setið hafa lengst við völd. Meira
| Erlent 21-05-2007 18:15 Stjórnvöld í Slóvakíu viðurkenna bahá’í trúna BRATISLAVA, Slóvakíu, 13. maí 2007 (BWNS) — Stjórnvöld í Slóvakíu hafa skráð bahá’í trúna opinberlega sem trúarsamfélag, sem tryggir Bahá’í samfélaginu réttinn til þess að eiga eignir, hafa skráða helgidaga, dreifa les- og kynningarefni og vera með almenna starfsemi í gangi.
Viðurkenningin er árangur umsóknar sem bahá’íar sendu inn með undirskriftum 28.000 stuðningsmanna í landinu öllu. Meira
| | Erlent 21-05-2007 18:09 Loftslagsbreytingarnar leiða af sér siðferðileg álitamál segir í niðurstöðum pallborðsumræðna SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, 9. maí 2007 (BWNS) — Vísindamönnum sem eru sammála um hitnun andrúmsloftsins fer fjölgandi og því er kominn tími til að við skoðum nánar hvernig við getum deilt með okkur þeim mannúðarskyldum, sem og þeim efnhagslegu og félagslegu byrðum sem líklega munu fylgja breytingum á andrúmslofti jarðar.
Þetta voru megin niðurstöður pallborðsumræðna um „Siðferðilegar víddir loftslagsbreytinga“ sem Alþjóðlega bahá’í samfélagið skipulagði og hélt þann 30. apríl 2007, á sama tíma og Nefnd Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun — UN Commission on Sustainable Development — hélt sinn árlega fund. Meira
| Erlent 21-05-2007 17:44 Það sem ’Virðing’ segir um konur BRISBANE, Ástralíu, 1. maí 2007 (BWNS) — Fyrir eitt hundrað árum var algengt að dægurlagatextar fjölluðu um konur sem einstaklinga háða karlmönnum, segir dr. Dorothy Marcic, fyrrverandi háskólaprófessor; og oftast voru það ekki einu sinni konur sem sungu lögin, heldur karlmenn.
„Það var raunverulega ekki fyrr en á þriðja áratug síðustu aldar að konur fóru að syngja svo teljandi væri,“ segir Dorothy Marcic enn fremur, og bendir jafnframt á að um hafi verið að ræða atkvæðamiklar konur í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Meira
| | Erlent 13-05-2007 19:19 Árangursríkur og vel heppnaður söngleikur byrjaði á bahá’í ráðstefnu BRISBANE, Ástralíu, 1. maí 2007 (BWNS) — Rekstrarráðgjafinn Dorothy Marcic hefur alltaf reynt að hafa málstofurnar sem hún hefur stýrt bæði skemmtilegar og upplýsandi.
Og viðleitni hennar fór skyndilega fram úr björtustu vonum.
Hún tók traustataki eigið erindi um jafnrétti kynjanna, jók við það 40 sönglögum sem fjalla um stöðu kvenna með einum eða öðrum hætti og voru efst á vinsældalistanum, og setti upp eins konar Broadway-söngleik.
Búið er að sýna söngleikinn með afar góðum árangri í nokkrum stórborgum í Bandaríkjunum, sýningartími verksins í Boston, Detroit og Atlanta hefur verið framlengdur, og frumsýning söngleiksins — sem í raun er nú orðin alþjóðleg viðskiptaafurð — er þegar að baki í Ástralíu. Meira
| Erlent 13-05-2007 18:59 Minnisvarði endurreistur í þýskri borg BAD MERGENTHEIM, Þýskalandi, 25. apríl 2007 (BWNS) — Yfirvöld í borginni Bad Mergentheim í Suður-Þýskalandi hafa látið endurreisa Bahá’í minnisvarða sem var fjarlægður þegar nasistar voru við völd. Minnisvarðinn sem er úr steini var reistur til minningar um heimsókn ’Abdu’l-Bahá árið 1913, en hann var arftaki Bahá’u’lláh og forystumaður bahá’í trúarinnar.
Upphaflegi minnisvarðinn var reistur árið 1916 en fjarlægður árið 1937 á þeim tíma þegar bahá‘íar höfðu verið gerðir útlægir af nasistum. Meira
| | Erlent 13-05-2007 18:39 Samkvæmt nýrri rannsókn er hægt að virkja trúna til þess að ná meiri árangri gegn HIV smiti og eyðni GEORGETOWN, Guyana, 24. apríl 2007 (BWNS) — Aðgerðir sem miða að því að fyrirbyggja útbreiðslu HIV veirunnar og eyðni meðal ungs fólks verða árangursríkari ef þeim er beint í máttugan farveg trúar og trúariðkana.
Þessa uppgötvun gerðu vísindamenn, sem hafa stundað rannsóknir á þekkingu og hegðun ungs fólks með tilliti til HIV smits, eyðni og kynferðislegrar hegðunar. Meira
|
|
 |
 |
Um vefinn Tæknilegar upplýsingar varðandi vefinn og staða
hans.
|
|