Um trúnaLöng kynning
Heimssamfélag bahá'ía

Eining í fjölbreytileika
Um allan heima vinna bahá'íar ađ breytingum međ sameiginlegan tilgang og framtíđarsýn.

1 2

Frá örófi alda hafa samfélög manna veriđ reist á trúarbrögđum. Samfélög bahá'ía einkennast af sérstökum lífsháttum.

Kimiko Schwerin á heima í útborg Tokyo, gift Bandaríkjamanninum John, en ţar reka ţau tungumálaskóla sem nýtur mikillar velgengni. Kimiko, sem fćddist í Nagasaki, hefur á margan hátt rutt veginn fyrir japanskar konur sinnar kynslóđar. Ekki ađeins ađ hún giftist útlendingi - en fyrir ţađ var hún eitt sinn löđrunguđ af reiđum ókunnum manni sem mislíkađi slíkt - heldur er hún líka athafnasöm í hvers kyns starfi ađ jafnréttismálum.

Stanlake Kukama, sem var á unga aldri hérađsforingi í Afríska ţjóđarráđinu í Suđur-Afríku, hćtti ađ skipta sér af stjórnmálum á sjötta áratugnum og fór ađra leiđ ađ ţví marki ađ afnema kynţáttamisrétti í landi sínu. Ţótt hann sé kominn á eftirlaun vinnur hann enn ađ sama markmiđi og fyrir 30 árum, ađ leggja grunn ađ samfélagi sem geti veriđ fyrirmynd ađ góđum samskiptum hvítra og svartra.

Primo Pacsi á heima í Andesfjöllum Bólivíu og rćktar ţar kartöflur í bröttum hlíđum ađ hćtti forfeđra sinna sem ţar hafa búiđ kynslóđ eftir kynslóđ. Pacsi naut lítillar skólagöngu. Eigi ađ síđur hefur hann ađstođađ viđ ađ koma á forskóla fyrir ţorpsbörnin. Skólinn er mikilvćg lyftistöng menntunar barnanna á tímabili sem skiptir sköpum fyrir ţroska ţeirra. Hann hefur einnig veriđ í fararbroddi í notkun ódýrra sólhitađra gróđurhúsa og ţess vegna getur hann ásamt grönnum sínum rćktađ margskonar ávexti og grćnmeti sem ella myndu ekki ţroskast svo hátt til fjalla.

Ţau ţrjú, sem hér hafa veriđ nefnd, Schwerin, Kukama og Pacsi, eru af ólíku ţjóđerni, međ ólíka menntun og frá ólíkum menningarsvćđum, en ţau eru sameinuđ í trú sinni, ţau eru bahá'íar í anda og athöfn.

Heimssamfélag bahá'ía er líklega ţađ samfélag manna á jörđunni sem er fjölbreytilegast og útbreiddast, en samtímis er ađ finna innan ţess einingu sem ekki á sinn líka. Bahá'íar um víđa veröld eiga rćtur í öllum fyrri trúarbrögđum; búddisma, kristni, hindúisma, gyđingdómi, islam, sikhatrú, zaraţústratrú og jafnvel úr hópi „andatrúarmanna“ og trúleysingja. Samt styđjast ţeir nú viđ sömu trúarritin, fylgja sömu lögum um trúarlega siđfrćđi og styđjast viđ eitt alţjóđlegt stjórnkerfi til stöđugrar leiđsagnar.

Tilfinning ţeirra fyrir einingu nćr út fyrir öll ţekkt trúarbrögđ. Hún er látin í ljósi í skilyrđslausri hollustu viđ heimsáćtlun um siđrćnar, andlegar og félagslegar framfarir sem fela í sér margar fegurstu hugsjónir um siđmenningu.

Ađ koma á jafnrétti kvenna og karla er forgangsmarkmiđ, svo og ađ binda endi á kynţátta- og ţjóđflokkafjandskap. Annađ meiriháttar markmiđ ţeirra er ađ koma á efnahagslegu réttlćti, sömuleiđis tryggja öllum skilyrđi til góđrar menntunar. Samfélagiđ hafnar hvers kyns hjátrú og setur fylgjendum sínum ţađ mark ađ ná hćsta stigi siđgćđis. Heimsfriđur og stofnun heimsspannandi sambandsríkis hefur veriđ og heldur áfram ađ vera eitt verđugasta verkefniđ.

Engin önnur svo fjölbreytileg heimssamtök, hvort heldur um trúmál, stjórnmál eđa ţjóđfélagsmál, geta státađ af félögum sem eru eins hollir hugsjón sem í senn er svo einföld, samfelld og algild. Uppspretta ţessarar hugsjónar er hjá Bahá'u'lláh (1817-1892), stofnanda bahá'í trúar. Hann var persneskur ađalsmađur sem lifđi síđustu 40 ár ćvinnar sem fangi og útlagi. Hann skrifađi jafngildi meira en 100 bóka, en ţau rit leggja ţann grunn sem heimssamfélag bahá'ía stendur á.

Nćsta síđa

Aukaefni í ţessum hluta:

Hver er fjöldi bahá'ía.
Hvernig breiđa bahá'íar út trú sína.
Nítjándagahátíđin.
Sjálfstćđ trúarbrögđ eđa sértrúarflokkur.

 

 

 

 


Átrúendur af amerískum frumbyggjaćttum dansa ţjóđdansa á alţjóđlegu móti í Montreal 1982.
Átrúendur af amerískum frumbyggjaćttum dansa ţjóđdansa á alţjóđlegu móti í Montreal 1982.

„Allir menn hafa veriđ skapađir til ađ stuđla ađ síframsćkinni siđmenningu.“
                     - Bahá'u'lláh

Primo Pacsi, stendur fyrir miđju í hópi forskólanema í ţorpinu Laku Lakuni, hátt uppi í Andesfjöllum Bólivíu.
Primo Pacsi, stendur fyrir miđju í hópi forskólanema í ţorpinu Laku Lakuni, hátt uppi í Andesfjöllum Bólivíu.

„Takmarkiđ ekki sýn yđar viđ yđar eigiđ sjálf - látiđ hana umlykja allan heiminn“
                     - Bahá'u'lláh

John og Kimiko Schwerin á heimili sínu í úthverfi Tokyo.
John og Kimiko Schwerin á heimili sínu í úthverfi Tokyo.






Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt ţjóđarráđ bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Textinn á ţessari síđu tekinn úr ritinu Bahá'íar sem gefiđ er út af Alţjóđlega bahá'í samfélaginu (lagfćrđur texti).
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is
Ţessi ţessi síđa var sett inn ţann 02-12-2003 kl. 12:00 og uppfćrđ ţann 12-02-2006 kl. 10:10.

Tilvísunarslóđ: