Á meðal þeirra atriðia sam bahá’í samfélagið boðar að stuðli að heimseiningu eru: samveldi þjóðanna, alþjóðlegt hjálpartungumál, samræming á efnahag heimsins, alheimsmenntakerfi, mannréttindasáttmáli fyrir allar þjóðir, alheimssamskiptatækni og alheimslegt kerfi myntar, þyngdar og mælieininga.
Þar eð bahá’íar trúa því að Sameinuðu þjóðirnar gegni mikilvægu hlutverki í sameiningu jarðarinnar, hafa þeir stutt störf stofnunarinnar á allan mögulegan hátt. Alþjóðlega bahá’í samfélagið hefur áheyrnarfulltrúa í Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) og hjá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Skrifstofur samfélagsins í New York og Genf og bahá’íar í mörgum löndum taka reglulega þátt í ráðstefnum, þingum og námskeiðum sem fjalla um félagsleg málefni og efnahagsmál jarðarinnar.
Þær þjáningar er trúsyskini bahá’ía hafa mátt þola, sem fórnarlömb trúarofsókna, hafa gert þá næma fyrir kenningum Bahá’u’lláh um mannréttindi. Alþjóðlega bahá’í samfélagið tekur virkan þátt í samráðsfundum Sameinuðu þjóðanna sem fjalla um réttindi minnihlutahópa, stöðu kvenna, velferð barna og fjölskyldunnar, afvopnun og leiðir til að koma í veg fyrir glæpi og hefta útbreiðslu eiturlyfja.
Næsta síða



