Séð með augum sögunnar hafa trúarbrögðin verið máttugasta aflið til að breyta afstöðu fólks og hegðun. Viðleitni bahá'ía til að takast á við víðtæka félagslega erfiðleika í mannlegu samfélagi byggist því á boðskap Guðs fyrir okkar daga sem býður upp á nýjar fyrirmyndir fullar bjartsýni sem miða að félagslegum aðgerðum og umbreytingu.
Þó að mannafli og fjármagn sé enn ekki sambærilegt við það sem eldri trúarsamfélög hafa aðgang að - svo ekki sé minnst á ríkisstjórnir og alþjóðasamtök - þá hefur heimssamfélag bahá'ía sett af stað síðustu árin víðtækt starf til að takast á við vanda vanþróunar og umhverfishnignunar um allan heim.
Þetta starf er mikilvægt þó ekki vegna umfangs, heldur vegna ferskleikans og vonarinnar sem það felur í sér. Eftir nýjustu heimildum annast bahá'í samfélög víða um heim meira en 1300 svæðisbundin þróunarverkefni. Þessi verkefni eru allt frá einföldum lestrarkennslustöðvum til skógræktarverkefna, frá heilsugæslustöðvum til miðstöðva fyrir umhverfisrannsóknir. Flest þessara verkefna eru í þróunarlöndunum.
Það sem einkennir þetta bahá'í starf er samþætting sérstakra andlegra, félagslegra og stjórnunarlegra meginreglna sem Bahá'u'lláh setti fram fyrir heilli öld. Á hverju því sviði sem þessar reglur ná til - hvort heldur er í andlegum skilningi, félagslegum hugmyndum eða í stjórnun - þá gefa kenningar Bahá'u'lláh mönnum nýja sýn og færi á að nálgast hlutina á nýjan hátt.
Ef við tökum þetta allt sem heild, þá margfaldast áhrifin. Bahá'íar trúa því að kenningar Bahá'u'lláh séu alhliða tæki fyrir það sameiginlega félagslega átak sem er mannkyninu nauðsynlegt til að lifa af og njóta hagsældar á þessari nýju öld.
Andlegar kenningar Bahá'u'lláh leggja áherslu á sjálfstraust og það að vera sjálfum sér nógur og stuðla að því að reynt sé að skilja félagsleg vandamál og orsakir þeirra með heildstæðum og heimsspannandi aðferðum. Ef til vill er þó mikilvægara að kenningar Bahá'u'lláh tengjast innstu þáttum mannlegs eðlis - meðfæddum andlegum þáttum - og snerta þannig hvatningar afl mannsandans.
Félagslegar kenningar Bahá'u'lláh gefa viðmiðun hvað varðar framsæknar aðgerðir og siðræna hegðun sem eru ekki aðeins í samræmi við göfugustu hugsjónir nútíma þjóðfélags heldur samræmast einlægustu þrá mannanna. Þær eru holdtekja réttlætisins og hafa beina og raunverulega þýðingu, við lausn félagslegar vandamála.
Barátta gegn fátækt verður t.d. ekki skilin frá baráttunni fyrir réttindum kvenna. Mikill meiri hluti fátæklinga í heiminum eru konur og börn. Í mörgum þróunarlöndum, einkum í Afríku, eru konur í bændastétt sem rækta mest af matjurtunum. Bahá'íar trúa því að árangur af starfi til að tryggja fólki nógan mat í þessum heimshluta sé mjög undir því kominn að staða kvenna sé bætt. Málefni þróunar og umhverfis eru jafn háð því að lausn sé fundin lausnum á kynþáttahatri, menntunarskorti og trúarbragða átökum.
Stjórnkerfi það sem Bahá'u'lláh mótaði sýnir hvernig taka má félagslegan vanda nýjum tökum. Heimsspannandi net svæðisbundinna og þjóðlegra og alþjóðlegra ráða er tillaga að nýju fyrirkomulagi valddreifingar. Þetta á sérstaklega við um andlegu svæðisráðin sem líta má á sem stofnanir taka ákvarðanir sem fólkið stendur að og eru fær um að skilja og takast á við valkosti í þróunarmálum.
Enn frekar má benda á að samráð, eins og það tíðkast meðal bahá'ía, má nýta við óteljandi aðrar kringumstæður til að stuðla að samvinnu og félagslegri uppbyggingu.
Næsta síða


