Meginstefið í boðskap Bahá’u’lláh er að mannheimur sé einn og sami kynþátturinn og að runnin sé upp dagur sameiningar hans í eitt alheimssamfélag. Guð, segir Bahá’u’lláh, hefur komið af stað öflum sögunnar er brjóta niður hefðbundnar hindranir milli kynþátta, stétta, trúflokka og þjóða. Þessi þróun mun fæða af sér alheimssiðmenningu í fyllingu tímas. Megináskorunin sem fólk jarðarinnar stendur andspænis er að vinna að einingu og viðurkenna þá staðreynd að það er ein heild.
Tilgangur bahá’í trúarinnar er meðal annars að hjálpa til við að gera þessi viðbrögð möguleg. Alheimssamfélag um það bil sex milljón bahá’ía, sem hefur innan sinna vébanda fulltrúa frá flestum þjóðum, kynþáttum og menningarsamfélögum jarðarinnar, vinnur að því að gera kenningar Bahá’u’lláh að veruleika. Reynsla þeirra er hvatning öllum þeim sem deila með þeim sýn þeirra um mannheiminn sem eina alheimsfjölskyldu og jörðina sem eina fósturjörð.
Næsta síða



