Um trúnaStutt kynning
Kenningar og líferni

Kenningar og líferni
Bahá’u’lláh boðaði trú á einn Guð, sem opinberar vilja sinn stöðugt til mannkyns og að þessar opinberanir hafi verið meginaflið að baki siðmenningunni. Hinir guðlegu boðberar eru frumkvöðlar þessarar þróunar. Menn hafa fyrst og fremst litið á boðberana sem stofnendur aðskilinna trúarkerfa, en sameiginlegur tilgangur þeirra að vinna að andlegum og siðferðilegum þroska mannkyns.

Mannkynið er nú að verða fullveðja. Það er þetta sem gerir mögulega einingu hinnar mannlegu fjölskyldu og uppbyggingu friðsams alheimssamfélags. Á meðal þeirra meginkenninga sem Bahá’í trúin boðar að séu nauðsynlegar til að þessu markmiði verði náð eru:
  • að hvers konar fordómar verði afnumdir.
  • að konum sem körlum verði tryggð jöfn tækifæri í lífinu.
  • að afstæði trúarlegs sannleika verði viðurkennt.
  • að öfgum fátæktar og auðs verði útrýmt.
  • að alheimslegri menntun verði hrint í framkvæmd.
  • að sérhver einstaklingur beri ábyrgð á því að leita sjálfstætt að sannleikanum.
  • að heimsbandalag verði stofnsett.
  • að menn geri sér grein fyrir að sönn trúarbrögð eru í samræmi við skynsemi og vísindarannsóknir.
Bahá’u’lláh kennir að sérhver mannleg vera sé „náma auðug af ómetanlegum gimsteinum,“ sem eigandi hennar er sér jafnvel ómeðvitaður um, hvað þá aðrir, og að auðæfi hennar séu óþrjónandi. Tilgangur lífsins sé að þroska þessa hæfileika, bæði sjálfum sér og mannheimi til hagsbóta. Líf í þessum heimi, eins og Bahá’u’lláh lýsir því, er líkt og líf barns í móðurkviði: þau siðferðilegu, vitsmunalegu og andlegu öfl sem sérhver mannleg vera þroskar með sér hér, með Guðs hjálp, eru þeir „útlimir“ og þau „líffæri“ sem sálin mun þarfnast til að taka framförum í heimunum handan þessarar jarðnesku tilveru.

Því hvetur lífernið, sem bahá’íar leitast við að rækta með sér til aukins persónulegs þroska. Daglegar bænir og hugleiðsla frelsa sálina frá skilyrtu mynstri og opna hana fyrir nýjum möguleikum. Vinna að verkefnum með ólíku fólki brýtur niður fordóma. Áfengi og eiturlyf eru ekki notuð, nema þegar um er að ræða tilvísun frá lækni, vegna þess að þessi efni deyða hugann þegar til lengdar lætur. Það síðarnefnda á einnig við um baktal, sem brýtur niður traust á milli fólks og grefur undan anda einingar, sem mannlegar framfarir byggjast á.

Kenningar Bahá’u’lláh boða að fjölskyldan sé afar mikilvæg sem grundvöllur mannlegs samfélags. Sérstök áhersla er lögð á helgi hjónabandsins, jafnrétti eiginmanns og eiginkonu, og beitingu samráðs.

Næsta síða

 

 

 

 


Stólpi á bahá'í tilbeiðsluhúsinu í Wilmette, Illinois, með táknum fjögurra helstu trúarbragða mannkyns.
Stólpi á bahá'í tilbeiðsluhúsinu í Wilmette, Illinois, með táknum fjögurra helstu trúarbragða mannkyns.


Bahá'í nemendur skoða sýni í smásjá (Rabbani skólinn á Indlandi).
Bahá'í nemendur skoða sýni í smásjá (Rabbani skólinn á Indlandi).








Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Upplýsingarnar á þessari síðu eru teknar úr bæklingnum Bahá'í trúin sem gefinn er út af Alþjóðlega bahá'í samfélaginu (lagfærður texti með viðbætum).
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is.
Þessi þessi síða var sett inn þann 04-12-2003 kl. 11:44 og uppfærð þann 18-12-2003 kl. 16:50.

Tilvísunarslóð: