Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Fréttir

  • 
    4. nóvember 2017 Höfundur: siá

    Einstæð röð bréfa eftir 'Abdu'l-Bahá kemur út á íslensku

    Bréf 'Abdu'l-Bahá til Norður-Ameríku og Grænlands
    Ritið „Töflur hinnar guðlegu áætlunar“ kemur út í íslenskri þýðingu. Bókin inniheldur einstæða röð bréfa, sem ‘Abdu’l-Bahá, leiðtogi bahá'í trúarinnar frá 1892-1921, sendi til bahá’ía í Norður Ameríku og Grænlandi á tímabilinu 26. mars 1916 til 8. mars 1917.
  • 
    3. nóvember 2017 Höfundur: siá

    Bahá'í trúin kynnt víða um landið

    Glaðlegir gestir frá Albaníu meðal gesta í Gamla Bíó
    Öflug kynning á bahá'í trúnni og höfundi hennar, Bahá'u'lláh, átti sér stað helgina 20.-22. október í tengslum við hátíðahöldin í tilefni af því að 200 ár voru þá liðin frá fæðingu Hans.
  • 
    2. nóvember 2017 Höfundur: siá

    Bahá'í leiðtogi losnar úr fangelsi

    Fjölskyldameðlimir taka á móti Faribu Kamalabadi þegar hún kemur út úr fangelsinu
    Fariba Kamalabadi, móðir og sálfræðingur, hefur verið sleppt úr hinu illræmda Evin fangelsi í Teheran.
  • 
    30. október 2017 Höfundur: siá

    Muslimsk fjölskylda í Íran sýnir vinaþel

    Í Íran bauð muslimsk fjölskylda bahá'í nágrönnum sínum upp á fallega skreytta tertu í tilefni 200 ára afmælisins.
  • 
    27. október 2017 Höfundur: siá

    “Ljós fyrir heiminn” sýnd á næstu kyrrðarstund í Mosfellsbæ

    Fyrir þá sem misstu af heimildamyndinni “Ljós fyrir heiminn” eða vilja sjá hana aftur, gefst nú annað tækifæri því myndin verður sýnd næstkomandi mánudagskvöld á eftir kyrrðarstund á heimili Ólafs Haraldssonar og Ranheiðar Ragnarsdóttur, að Reykjabyggð 55 í Mosfellsbæ,
  • 
    25. október 2017 Höfundur: siá

    Háskólinn fær bahá'í bækur að gjöf

    Í tilefni af 200 ára fæðingarhátíð Bahá’u’lláh afhentu þau Bee McEvoy og Róbert Badí Baldursson Landsbókasafni-Háskólasafni bahá'í fræðibækur fyrir hönd íslenska bahá'í samfélagsins.
  • 
    24. október 2017 Höfundur: siá

    Bahá'íar á Íslandi fagna 200 ára afmæli Bahá'u'lláh

    Líkt og um allan heim, var þess minnst á Íslandi að 200 ár voru liðin þann 22. október frá fæðingu Bahá'u'lláh, opinberanda bahá'í trúarinnar.
  • 
    23. október 2017 Höfundur: siá

    Hátíðarhöld við tilbeiðsluhúsin á Indlandi og Samóa

    Við upphaf hátíðarhaldanna í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Bahá'u´lláh voru haldnar hátíðlegar helgistundir í bahá''í tilbeiðsluhúsunum í Apia, Samóa og í Nýju Delhi á Indlandi.
  • 
    21. október 2017 Höfundur: rbadi76

    Hátíðahöld á Íslandi

    200 ár frá fæðingu Bahá'u'lláh
    Bahá’íar á Íslandi minnast fæðingar Bahá’u’lláh á morgun, sunnudaginn 22. október, víða um land, en hátíðahöldin verða sérstaklega vegleg vegna þess að nú eru 200 ár liðin frá fæðingu Hans. Upplýsingar um stað og tíma má finna hér. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
  • 
    21. október 2017 Höfundur: rbadi76

    Fæðingarhátíð Bahá'u'lláh í Hafnarfirði

    Auglýsing frá Bahá'í samfélaginu í Hafnarfirði
    Í tilefni af því að 200 ár eru frá fæðingu Bahá’u’lláh bjóða bahá'íar í Hafnarfirði til kvikmyndakynningar og kaffiveitinga í Bæjarbíói, Strandgötu, sunnudaginn 22. október, kl. 15:00.
  • 
    21. október 2017 Höfundur: siá

    Beinar útsendingar frá sex tilbeiðsluhúsum á netinu

    Beinar útsendingar verða á opinberum vef tvö hundruð ára hátíðarhaldanna frá samkomum í sex bahá'í tilbeiðsluhúsum. Svipmyndir af hátíðarhöldunum verða einnig á opinberu vefsíðunni.
  • 
    19. október 2017 Höfundur: siá

    Kvikmyndasýning í Amtsbókasafninu

    Bahá´í samfélagið á Akureyri fagnar 200 ára fæðingarhátíð Bahá’u’lláh og býður af því tilefni gestum og gangandi að koma og sjá glænýja mynd með islenskum texta, sem ber nafnið "Ljós fyrir heiminn".
  • 
    18. október 2017 Höfundur: siá

    Kvikmyndin „Ljós fyrir heiminn“ aðgengileg á vefnum með íslenskum texta

    Kvikmynd um ævi og kenningar Bahá'u'lláh er nú aðgengileg á vefnum
    Bahá’í samfélagið sendir frá sér kvikmyndina „Ljós fyrir heiminn“ í tilefni 200 ára fæðingarhátíðar Bahá’u’lláh. Í henni er fjallað á áhrifamikinn hátt um líf og opinberun Bahá’u’lláh. Saga Hans og boðskapur trúarinnar er settur fram í lifandi og áhugaverðum viðtölum við marga viðmælendur á ýmsum tungumálum.
  • 
    17. október 2017 Höfundur: siá

    Theresa May forsætisráðherra Bretlands og fleiri senda árnaðaróskir

    Theresa May forsætisráðherra Bretlands er meðal þeirra leiðtoga í Evrópu og Norður Ameríku sem hafa sent bahá'íum í sínum löndum uppörvandi bréf í tengslum við 200 ára fæðingarafmæli Baháu'lláh.
  • 
    16. október 2017 Höfundur: siá

    Bahá'íar í Reykjavík bjóða til veislu í Gamla Bíó

    Milljónir manna um allan heim, sem hlotið hafa innblástur frá lífi og kenningum Bahá’u’lláh, munu halda upp á 200 ára fæðingarafmæli Hans þann 21. og 22. október. Af því tilefni bjóða bahá'íar í Reykjavík til veislu í Gamla Bíó, Ingólfsstræti 2a, sunnudaginn 22. október, kl. 14:40.

Síður