Bahá’íar í Svíþjóð hafa gefið út fyrstu heildarþýðingu Kitáb-i-Aqdas, helgustu bókar Bahá’u’lláh, á sænsku.
Útgáfan markar áfanga í meira en þriggja áratuga starfi við að gera bahá’í rit aðgengileg á sænsku og er afrakstur víðtæks samstarfs þýðenda, yfirlesara og meðlima bahá’í útgáfu landsins.
Við þýðingarvinnuna var lögð sérstök áhersla á að varðveita bæði merkingu og fegurð textans. Þau sem komu að verkefninu lögðu áherslu á að ná fram skýru, fallegu og ljóðrænu máli sem gæti miðlað andlegu innihaldi bókarinnar á sem bestan hátt.

Útgáfunni var fagnað á samkomu með yfir 200 þátttakendum þar sem fjallað var um fjölskyldulíf sem grundvöll samfélagsins og um mikilvægi Kitáb-i-Aqdas fyrir andlegt og siðferðilegt líf einstaklinga og samfélaga.
Kitáb-i-Aqdas var opinberuð af Bahá’u’lláh á arabísku um árið 1873 í fangavist hans í ‘Akká. Heimiluð ensk þýðing kom út árið 1992 og síðan hafa þýðingar á fjölmörg tungumál bæst við.
Á Íslandi kom íslensk þýðing Kitáb-i-Aqdas út árið 2021 og gerði þar með þetta grundvallarrit bahá’í trúarinnar aðgengilegt íslenskum lesendum.
Nánar má lesa um útgáfuna á vef bahá’í heimsfréttaþjónustunnar.


