Nefnd SÞ fordæmir mannréttindabrot Írans og vekur athygli á vaxandi ofsóknum gegn bahá’íum

Nefnd SÞ fordæmir mannréttindabrot Írans og vekur athygli á vaxandi ofsóknum gegn bahá’íum

Fimmtudagur, 19 Nóvember 2026

NEW YORK — Þriðja nefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna hefur enn á ný fordæmt framgöngu íranskra stjórnvalda í mannréttindamálum og vakið athygli á vaxandi ofsóknum gegn bahá’í samfélaginu, en kerfisbundin mismunun og kúgun hefur nú staðið óslitið í tæpa fimm áratugi.

Ályktunin, sem samþykkt var með 76 atkvæðum gegn 27, en 64 sátu hjá, lýsir alvarlegum áhyggjum af víðtækum mannréttindabrotum í Íran, meðal annars gegn konum, trúar- og þjóðernisminnihlutahópum og öðrum viðkvæmum hópum. Þar er sérstaklega vakin athygli á kerfisbundnum ofsóknum gegn bahá’í samfélaginu og lýst áhyggjum af fregnum af sviðsettum aftökum og pyntingum á bahá’í föngum í því skyni að knýja fram þvingaðar játningar til útsendingar í ríkissjónvarpi.

Ályktunin kemur fram á sama tíma og ofsóknir gegn bahá’íum um allt Íran hafa aukist verulega. Undanfarna mánuði hafa ofbeldisfullar húsleitir á heimilum bahá’ía í nokkrum borgum einkennst af óvenjulegu og fordæmalausu ofbeldi, grimmd og tilraunum til niðurlægingar. Í sumum tilvikum hafa útsendarar stjórnvalda vísvitandi reynt að niðurlægja foreldra frammi fyrir börnum sínum, blandað glerbrotum í mat fjölskyldna, eyðilagt innanstokksmuni og lagt hald á persónulegar eigur fjölskyldna og skipt þeim á milli sín sem „herfangi“.

Í Borujerd kveiktu útsendarar stjórnvalda í heimili bahá’ía í kjölfar húsleita og rána á heimilum bahá’ía. Í Isfahan voru yfir tíu bahá’í konur fangelsaðar, og í Yazd og Shiraz var ráðist inn á fjölmörg heimili, vinnustaði og samkomur, eignir gerðar upptækar og fyrirtækjum lokað með innsigli. Þessi tilvik eru hluti af vaxandi herferð ofbeldisfullra ofsókna sem hefur orðið til þess að bahá’í fjölskyldur búa við ótta og óöryggi.

„ Að lifa sem bahá’íi í Íran er orðið óbærilegt, þar sem dagleg grimmdarverk ná jafnvel inn í innstu kima fjölskyldulífsins. Lágkúran í sumum þessara verka er hreint út sagt ógeðsleg. Hún sýnir hve langt yfirvöld hafa gengið til að gera bahá’íum daglegt líf erfitt. Og það sem mestu skiptir er að þetta sýnir að trúarlegir fordómar, en ekki nokkur önnur uppgefin ástæða, eru hin raunverulega ástæða ofsóknanna,“ sagði Rachel Bayani, aðalfulltrúi Alþjóðlega bahá’í samfélagsins hjá Sameinuðu þjóðunum. „Þessi ályktun er enn eitt skýrt og samhljóma merki frá alþjóðasamfélaginu um að þessum grimmdarverkum verði að linna og að Íran verði tafarlaust að láta af mannréttindabrotum sínum.“

Sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um Íran, Mai Sato, vakti í ávarpi sínu til þriðju nefndar allsherjarþingsins athygli á áframhaldandi ofsóknum gegn bahá’íum, og í skýrslu hennar til allsherjarþingsins eru skráðar húsleitir, lokanir fyrirtækja, eignaupptökur og áreitni gegn samfélaginu. Óháða alþjóðlega staðreyndanefndin um Íslamska lýðveldið Íran lagði sömuleiðis áherslu á viðvarandi ofsóknir gegn bahá’íum vegna trúarlegrar sjálfsmyndar þeirra. Fjölmörg aðildarríki tóku undir þessar áhyggjur á sama fundi.

Áður en ályktunin var samþykkt hafði skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna frá 28. júlí 2026 einnig greint frá aukinni kúgun bahá’í samfélagsins í Íran. Svo undarlegt sem það er véfengdi fastanefnd Írans hjá Sameinuðu þjóðunum niðurstöður skýrslunnar um bahá’ía þegar þriðja nefndin fjallaði um réttindi minnihlutahópa og kallaði eftir nákvæmum og sannreynanlegum upplýsingum.

Í því samhengi sagði Bayani: „Þegar kemur að ofsóknum gegn bahá’íum í Íran er ekki erfitt að finna nákvæmar og sannreynanlegar upplýsingar. Þetta er eitt best skjalfesta dæmi um kerfisbundnar ofsóknir sem fyrirfinnst. Sumar af sterkustu sönnununum koma frá írönskum stjórnvöldum sjálfum. Opinberar tilskipanir þeirra, dreifibréf, stjórnsýslufyrirmæli og dómsúrskurðir mynda beina skjalaslóð ofsóknanna, sem er öllum aðgengileg á vefsíðunni Archives of Persecution, þar sem finna má yfir 12.000 skjöl.“

 Þýtt af vef bahá’í heimsfréttaþjónustunnar.

Þess má geta að Ísland var meðflutningsaðili að ályktunartillögunni og greiddi atkvæði með henni eins og það hefur gert árlega þegar fjallað er um mannréttindamál í Íran.

Leit