Bahá’í heimsmiðstöðin hefur opnað nýjan vef, For the Betterment of the World („Til heilla fyrir heiminn“), sem fjallar um nálgun bahá’í samfélagsins að félagslegri og efnahagslegri þróun um allan heim.
Vefurinn byggir á nýjustu útgáfu ritsins sem kom út árið 2023 og er ætlað að vera aðgengileg kynning á hugmyndum, reynslu og verkefnum á þessu sviði.
Á vefnum er fjallað um fjölbreytt þróunarverkefni, allt frá frumkvæði á vettvangi grasrótarstarfs til rótgróinna þróunarstofnana. Dæmi um viðfangsefni eru menntun, landbúnaður, heilsa, umhverfismál, efnahagslíf, listir og fjölmiðlar, auk eflingar á stöðu kvenna.
Einnig eru kynntar þær meginhugmyndir sem móta samfélagsaðgerðir bahá’ía, svo sem eining mannkynsins, réttlæti, samhljómur vísinda og trúar, allsherjarþátttaka og uppbygging getu einstaklinga, samfélaga og stofnana til að taka virkan þátt í eigin þróun.
Vefurinn inniheldur hljóðútgáfur af greinum, kort og myndræna framsetningu á útbreiðslu þróunarverkefna bahá’ía um heim allan, auk stuttrar kvikmyndar um þessa viðleitni. Þar má einnig nálgast allt ritið For the Betterment of the World á sjö tungumálum.
Með þessum nýja vef er auðveldara en áður fyrir áhugasama að kynna sér hvernig bahá’í samfélagið leitast við að leggja sitt af mörkum til andlegra, félagslegra og efnislegra framfara samfélaga um allan heim.
Bein slóð á vefinn er betterment.bahai.org.
Nánar má lesa um útgáfuna á vef bahá’í heimsfréttaþjónustunnar.


