Dagana 21.–22. nóvember verður haldið unglingamót á Kistufelli fyrir ungmenni á aldrinum 11 til 14 ára.
Markmið mótsins er að skapa vettvang þar sem unglingar geta komið saman, myndað ný vinatengsl og tekið þátt í uppbyggilegri dagskrá þar sem námsefni úr verkefni fyrir andlega eflingu unglinga verður skoðað.
Dagskráin hefst að morgni laugardags og lýkur síðdegis á sunnudegi og er boðið upp á gistingu á staðnum.
Eldri ungmenni verða hlutverki hópleiðara á mótinu. Hópleiðarar koma saman kvöldið áður en mótið hefst og taka þátt í undirbúningi og framkvæmd dagskrárinnar yfir helgina.
Nánari upplýsingar um skráningu og fyrirkomulag mótsins fást hjá þjóðarskrifstofu.

