Samtímis vaxandi áhyggjum í þessum heimshluta af ískyggilegum vandamálum—hungri, vopnuðum átökum, versnandi umhverfismálum, mannréttindum og öðrum málum—komu arabískir leiðtogar saman í höfuðborg Egyptalands í síðasta mánuði til að vinna að markmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þetta var í fyrsta sinn sem bahá'í samfélagið átti opinberan fulltrúa á ráðstefnu sem the Arab League (Arabíska sambandið) boðar til, en það eru samtök 20 þjóða í Norður Afríku og Mið Austurlöndum.