Kristinn H. Guðnason blaðamaður og sagnfræðingur skrifaði áhugaverða grein í DV.is í gær. Í henni rifjar hann upp fyrstu bahá'í hjónavígsluna á Íslandi sem átti sér stað í Árbæjarkirkju fyrir 51 ári og olli miklum úlfaþyt meðal háttsettra meðlima þjóðkirkjunnar, á meðan aðrir áhrifamenn innan raða hennar tóku upp hanskann fyrir málstað bahá'ía.