28. ágúst heimsóttu nokkrir bahá’íar leiði Ásgeirs Einarssonar í Fossvogskirkjugarði í fylgd Johns Spencers, sem fræddi þátttakendur um ævi hans. Ásgeir var meðal fyrstu Íslendinganna sem tóku bahá’í trú. Hópurinn setti ljósker á leiðið og fór með bænir. Á eftir var farið í göngu um Elliðaárdalinn. (byggt á frásögn Davíðs Ólafssonar)