Eðvarð T. Jónsson segir frá: Haustverkum á Skógum er lokið. Gróðurinn hefur komið sérlega vel undan sumri. Melar eru víða uppgrónir, fura og lerki dafna með afbrigðum og sumir þessara fögru skógarlunda eru nú vel sýnilegir frá þjóðveginum. Fátt sauðkinda hefur verið á svæðinu í sumar, bæði vegna styrkingar á rafmagnsgirðingu og eins vegna þess að einhverjir bændur virðast vera hættir að keyra fénað á beit í Þorskafirði. Stefnt er að því að styrkja girðinuna enn frekar næsta vor til að koma endanlega í veg fyrir að sauðir álpist inn á skógræktarsvæðið okkar.