Bahá'í sumarskólinn árið 2018
Andlegt þjóðarráð bahá'ía hefur ákveðið að Bahá'í sumarskólinn árið 2018 verði haldinn að Ljósafossskóla við Úlfljótsvatn, um 20 km norður af Selfossi, dagana 20.–24. júní. Dagskrá skólans verður auglýst síðar. Sumarskólinn er öllum opinn.