Hafnarfjarðarbær hefur úthlutað bahá'í samfélaginu í Hafnarfirði landskika í eigu bæjarins til að planta 200 trjám í tilefni af því að 200 ár eru liðinn frá fæðingu Bahá'u'lláh, opinberanda bahá'í trúarinnar. Bahá'í samfélagið hefur í hyggju að bjóða öðrum að koma til að taka þátt í gróðursetningunni.