Fjórir bahá'íar á ýmsum aldri, þau Sandra Júlía Matthíasardóttir, Erna Magnúsdóttir, Valentin Oliver Loftsson og Sigurður Ingi Ásgeirsson voru gestir í morgunþætti Útvarps Sögu í dag, 14. mars. Markús frá Djúpalæk og Jóhann tæknimaður spurðu margra góðra spurninga um bahá'í trúna. Rætt var um hvernig bahá'í samfélagið er að reyna að hrinda í framkvæmd kenningum Bahá'u'lláh, til dæmis með andlegu uppeldi barna, barnakennslu og markvissu unglingastarfi. Sigurður sagði frá kynnum sínum af skóla sem bahá'íar reka á Tonga, en hann heitir Ocean of Light International School. Erna sagði frá barnakennslu á Íslandi og hvað felst í slíku starfi. Sandra Júlía og Valentin voru spurð um hvernig það hefði verið að alast upp sem bahá'íi. Í tengslum við það útskýrðu þau nokkrar af meginkenningum trúarinnar, svo sem sjálfstæða leit að sannleikanum, einingu trúarbragða og stighækkandi opinberun. Þau sögðu líka frá bahá'í unglingastarfi sem þau hafa tekið þátt í. Erna útskýrði boðskap Bahá'u'lláh um jafnrétti kynjanna og Sigurður sagði stuttlega frá ævi Hans og þeim þjáningum sem Hann leið til að koma málstaði Guðs á framfæri. Fjögur lög voru spiluð í þættinum. Þrjú þeirra voru um bahá'í trúna og mikilvægi þess að koma á friði svo tryggja megi börnunum örugga æsku. Þættinum lauk með nýja Eurovision framlagi Íslands, en boðskapur þess er mjög í anda trúarinnar. Hægt er að hlusta á þáttinn hér.