Close

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Yngsti meðlimur Yaran lýkur tíu ára fangelsisvist


20. March 2018 Höfundur: siá

 

Vahid Tizfam og eiginkona hans, Furuzandeh Nikumanesh, hittast á ný eftir 10 ára fangelsisvist hans.

Vahid Tizfam og eiginkona hans, Furuzandeh Nikumanesh, hittast á ný eftir 10 ára fangelsisvist hans.

BIC GENF, 20. mars, 2018, (BWNS)—Vahid Tizfahm lauk afplánun 10 ára dóms í gær. Hann er 44 ára gamall, yngstur sjö fyrrverandi leiðtoga bahá'ía í Íran, sem sættu ranglátri fangelsisvist frá árinu 2008 fyrir trúarskoðanir sínar.

Vahid er sjötti meðlimur fyrrverandi hóps, þekktur sem Yaran (vinirnir), til að ljúka afplánun dóms síns og vera leystur úr haldi. Allir sjö meðlimir Yaran hópsins voru handtekin í mars eða maí árið 2008 og voru látin dúsa í gæsluvarðhaldi mánuðum saman áður en þau voru ákærð. Þau voru að lokum dæmd í 10 ára fangelsi í sýndarréttarhöldum.

“Við erum auðvitað mjög glöð að Vahid Tisfahm og hinir meðlimir Yaran nái endurfundum við fjölskyldur sínar,” sagði Diane Ala’i, fulltrúi Alþjóðlega bahá'í samfélagsins hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf. “En við getum ekki glaðst yfir þeirri staðreynd að Vahid eyddi áratug af lífi sínu í fangelsi fyrir engar aðrar sakir en trú sína, aðskilinn frá fjölskyldu sínni, vinum og samfélagi.”

“Það er alveg á hreinu að þetta skref er ekki merki um betri aðstæður íranska bahá'í samfélagsins í heild sinni,” sagði Diane, sem benti á að þeir eru enn beittir efnahagslegu misrétti, fá ekki að sækja æðri menntun, og geta átt von á tilhæfulausum handtökum og fangelsun.

Nú eru aðeins einn meðlimur Yaran hópsins eftir í fangelsi. Það er Afif Naeimi, sem er 55 ára gamall. Hann á að ljúka afplánun á næstu mánuðum.