Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Um það bil 100 manns sóttu ánægjulega nýárshátíð


21. mars 2018 Höfundur: siá
Davíð Ólafsson kynnir Hlöðver Bernharð Jökulsson sem flutti frumsamið lag

Davíð Ólafsson kynnir dagskrá kvöldsins

Bahá'íar á stór Reykjavíkursvæðinu héldu glæsilega nýárshátíð í félagsheimilinu Árskógum 4 í gær. Salurinn var fagurlega skreyttur. Stór blómakrans sem Ólafía Kristný Ólafsdóttir sá um að útvega og fallegt veggteppi sem vinirnir í Hafnarfirði komu með prýddu salinn. Páskaliljur, rósir og logandi kerti á borðunum juku enn á hátíðarstemninguna. Salurinn var þéttsetin. Hátt í 100 manns mættu, þó að hátíðin hefði verið haldin á virkum degi. Auk bahá'íanna, sem komu til að fagna því að föstunni var að ljúka og nýtt ár að ganga í garð, voru viðstaddir ýmsir vinir þeirra. Gestirnir voru meðal annars bahá'í hjón sem eru stödd hér á landi sem ferðamenn og hópur kvenna frá Afganistan.

Fallegur blómakrans skreytti hátíðarborðið

Fallegur blómakrans skreytti glæsilegt matarborðið

Dagskráin var afar fjölbreytt. Davíð Ólafsson kynnir kvöldsins bauð gesti velkomna. Síðan hófst virðuleg helgistund. Margrét Gísladóttir fór með nýársbænina. Rós Ólafsdóttir og Darian Róbertsson fóru einnig með bænir og Eyþór Bjarni Sigurðsson söng fallegt frumsamið lag. Eftir að Davíð hafði talið niður, ásamt salnum, síðustu sekúndurnar að áramótunum fyrir árið 175 lauk föstunni og var fólki boðið að setjast að snæðingi. Höfðu margir vinanna komið með bæði aðalrétti og eftirrétti og er það varla ofsagt að borðin hreinlega svignuðu undan bragðgóðum réttum, tertum og konfekti.

Hópur kvenna frá Afghanistan var meðal gestanna

Hópur kvenna frá Afghanistan var meðal gestanna

Þegar fólk var búið að fá sér í svanginn hófst seinni hluti dagskrárinnar. Ragnheiður Ragnarsdóttir flutti áheyrilega hugvekju dagsins. Hún fjallaði meðal annars um tilgang föstunnar, sem er ekki bara fólgin í því að neita sér um mat og drykk á meðan á henni stendur, heldur að líta inn á við og undirbúa sig fyrir næsta ár. Hún bauð gestum að syngja lagið “Vaknið, vaknið, því ný dagur er runninn upp af Drottins náð” (Toko Zani), sem Svanur Gísli þýddi á sínum tíma. Birna Ragnarsdóttir stjórnaði söngnum af miklum myndarskap. Þessu næst söng Hlöðver Bernharður Jökulsson frumsamið lag um Bahá'u'lláh af sinni alkunnu snilld. Þá var komið að söng bahá'í ungmenna úr Hafnarfirði. Rós Ólafsdóttir leiddi sönginn og mátti heyra að þarna er mjög efnileg söngkona að kveða sér hljóðs í bahá'í samfélaginu. Að því búnu sagði John Spencer frá gróðursetningu 200 trjáa í bæjarlandi Hafnarfjarðar.

 

Elínrós og Sandra Júlía frumfluttu lag um naw-rúz við mikinn fögnuð viðstaddra

Elínrós og Sandra Júlía frumfluttu lag um naw-rúz við mikinn fögnuð viðstaddra

Mæðgurnar Elínrós Benediktsdóttir og Sandra Júlía Matthíasdóttir voru næstar á dagskrá. Þær sungu tvö lög við góðar undirtektir. Annað lagið var frumsamið lag um naw-rúz, samið sérstaklega í tilefni kvöldsins. Allur salurinn tók undir þetta frábæra lag, sem á vafalítið eftir að verða sungið um hver áramót héðan í frá. Næsta atriði, söngur Ariönnu Ferro, var ekki síðri, en hún söng tvö frumsamin lög á hljómfagran hátt. Seinna lagið fjallaði um litlu dóttur hennar Paulu, sem var í salnum og kunni greinilega lagið utanað.

 

Elínrós kenndi gestunum línudans

Gestirnir spreyttu sig á línudansi

Samkomunni lauk með því að Elínrós kenndi gestunum línudans. Eins og sjá má á myndinni dreif fólkið sig út á gólfið. Davíð Ólafsson þakkaði því næst öllum fyrir komuna. Undirbúningsefnd skipuð bahá'íum frá Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði sá um skipulagninu hátíðarinnar. Nefndin vill koma sérstökum þökkum til Mirelu Protopöpu fyrir að hafa útvegað salinn og fyrir að aðstoða við uppsetningu og frágang hans. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við höfum fengið afnot af salnum, sem hentar mjög vel fyrir þessa stóru samkomu. Þar með lauk sérstaklega vel heppnuðu og skemmtilegu kvöldi. Gleðilegt nýtt ár! (Ljósmyndirnar tók Farzaneh Jafari Spencer)