Close

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Fulltrúar alls staðar að úr heiminum koma saman á 12. alþjóðaþinginu


26. April 2018 Höfundur: siá

 

Skráning fulltrúa í alþjóðlegu ráðstefnuhöllinni í Haifa

Skráning fulltrúa í alþjóðlegu ráðstefnuhöllinni í Haifa

BAHÁ'Í HEIMSMIÐSTÖÐINNI, 25. apríl 2018, (BWNS)—Um það bil 1300 fulltrúar frá meira en 160 löndum eru komnir til Haifa til að taka þátt á 12. alþjóðlega bahá'í þinginu.

Alþjóðaþingið er haldið á fimm ára fresti í Haifa, sem er stjórnarfarsleg og andleg miðstöð bahá'í heimssamfélagsins. Fulltrúarnir koma frá nánast hverri einustu þjóð. Meðan á þinginu stendur munu þeir taka þátt í ýmsum samráðsfundum og kjósa alþjóðlega stjórn trúarinnar, Allsherjarhús réttvísinnar.

Umræðurnar á alþjóðaþinginu snúast venjulega um þróun bahá'í trúarinnar og framlag bahá'í samfélaganna til síns þjóðfélags. Eitt af aðalumræðuefnunum fjallar um það hvernig bahá'í kenningunum—svo sem eining mannkyns, jafnrétti kynjanna, samræmi milli vísinda og trúarbragða og sjálfstæð leit að sannleikanum—er beitt við margs konar félagslegar og menningarlegar aðstæður, allt frá fjarlægum þorpum til stórra borga.

Ljósmyndir víðs vegar að úr heiminum eru til sýnis í ráðstefnuhöllinni. Fulltrúar skoða myndir frá Haiti.

Ljósmyndasýning í ráðstefnuhöllinni. Fulltrúar skoða myndir af starfinu á Haiti.

Fulltrúarnir á alþjóðaþinginu eru meðlimir kosinna bahá'í stofnana sem kosnar eru árlega í hverju landi. Þessar stofnanir, sem heita andleg þjóðarráð, leiðbeina og styðja starfsemi bahá'í samfélaga í sínu landi.

Þann 29. apríl, munu fulltrúarnir kjósa níu meðlimi Allsherjarhúss réttvísinnar, sem er bæði heilög skylda og forréttindi.

Fulltrúarnir biðjast fyrir við helgidóm Bahá'u'lláh í Bahjí áður en þingið hefst

Fulltrúarnir biðjast fyrir við helgidóm Bahá'u'lláh í Bahjí áður en þingið hefst

Áður en þingið hefst fá fulltrúarnir tækifæri til að undirbúa sig andlega. Það felur meðal annars í sér bænir og íhugun í helgidómunum í Haifa og 'Akká, auk heimsókna til sögulegra bahá'í helgistaða.

Til að sjá fleiri myndir, smellið hér.