Skrautskrifaðri útfærsla úr tekki á Hinu mesta nafni hefur verið komið fyrir innan í hvelfingu staðarmusterisins í Agua Azul í Kólumbíu
AGUA AZUL, Kólumbíu, 23. júní 2018, (BWNS) – Hinu helga bahá'í tákni, sem þekkt er sem “Hið mesta nafn”, var komið fyrir efst í hvelfingunni innan í bahá'í staðartilbeiðsluhúsinu í Agua Azul, Kólumbíu, á föstudag.
Smá hópur, sem samanstóð af meðlimum bahá'í samfélagins, varð vitni að þessum mikilvæga áfanga, en hann er lokahnykkurinn í byggingu annars staðartilbeiðsluhúss heimsins. Eftir að bænir höfðu verið sagðar, var útskornu tákni hins Mesta nafns komið fyrir innan í hvelfingunni í 15 metra hæð.
Hið Mesta nafn er skrautritað tákn bænaákallsins “Ó Dýrð hin Aldýrlega.” Mismunandi skrautskrifaðar útfærslur af tákninu er komið fyrir í sérhverju bahá'í tilbeiðsluhúsi. Höfuðdjásn musterisins, sem er í 18 metra hæð, táknar blómstrandi kókósblóm, en það er þekkt tákn í Kólombíu.
Á næstu vikum verður skreyttu boxi sem inniheldur ösku úr innsta hluta helgidóms Bábsins komið fyrir innan í musterinu. Auk þess verður teppi sem var í helgidómnum til sýnis í móttökusal musterisins. Þessar athafnir eru til vitnis um nána tengingu staðartilbeiðsluhússins við andlega miðstöð bahá'í trúarinnar.
Musterið er eitt af fimm staðartilbeiðsluhúsum sem Allsherjarhús réttvísinnar tilkynnti árið 2012 að ætti að byggja. Það verður opnað almenningi eftir vígsluathöfn þess í næsta mánuði. Fleiri myndir eru hér.