Leikarar söngleiksins um Henry Box Brown, sem er verið að setja á svið á leiklistarhátíð í Edinborg, Skotlandi
EDINBORG, Skotlandi, 20. ágúst (BWNS)— Henry Brown, sem var ákveðinn í að losna úr hlekkjum þrælahalds, lagði upp í mikla hættuför. Þetta var árið 1849. Hann var einn af 3 milljón manns sem bjuggu í ánauð í Bandaríkjunum. Hann sendi sjálfan sig í trékassa frá plantekru í Virginíu sem var í Suðurríkjunum, til Philadelphiu í norðurhluta landsins. Þrælahald var þegar orðið ólöglegt þar og hópur fólk sem barðist fyrir afnámi þrælahalds tók á móti honum og hjálpuðu honum að öðlast frelsi.
Í þessum mánuði hefur þessi einstaka saga verið endurvakin til lífsins á leiklistarhátíð í Edinborg.
Höfundur sýningarinar, Mehr Mansuri, er bahá'í. Þar eð eining mannkyns og afnám kynþáttafordóma eru meðal meginkenninga bahá'í trúarinnar, var efnið henni hugleikið. Hún notar leiklistina til að hvetja fólk til að ræða á uppbyggjandi hátt um þjóðfélagsmálefni og leggja sitt af mörkum til að bæta samfélagið.
“Ég var að leita að sögu fyrir söngleik sem átti að fjalla um hetju úr amerískri sögu af afrísku bergi brotnu,” sagði Mehr Mansuri — en hún flúði ofsóknir ásamt fjölskyldu sinni sem barn fyrir að vera bahá'í í föðurlandi sínu, Íran. Hún settist að í New York og hefur sett upp leiksýningar í skólum í tvo áratugi.
Mehr var stödd á bókamarkaði þegar hún rakst fyrst á söguna um Henry Brown í myndskreyttri barnabók. Sagan vakti strax athygli hennar.
Söngleikurinn um Henry Brown inniheldur marga gospel söngva frá 19. öld. Jack Lenz, bahá'í tónskáld frá Kanada, er tónlistarstjóri sýningarinnar. “Allir þessir söngvar urðu til meðal fólks sem beitt var miklu ofbeldi. Þeir hjálpuðu fólkinu að takast á við þessar erfiðu aðstæður,” segir Jack.
Eftir alþjóðlegu frumsýninguna í Edinborg verður farið með sýninguna til 25 borga í Bandaríkunum. Fyrsta sýningin verður í Flint, Michigan í nóvember.
Hægt er að hlusta á hlaðvarp um sýninguna og heyra lög úr sýningunni á vef Bahá'í heimsfréttaveitunnar. Þar er einnig hægt að sjá fleiri myndir úr sýningunni.