Safn meira en 100 nýþýddra ritningargreina úr bahá'í helgiritunum er nýkomið inn á vef Bahá'í heimildasafnsins. Vefurinn hefur auk þess verið endurbættur.
BAHÁ'Í HEIMSMIÐSTÖÐINNI, 5. september 2018, (BWNS)— Í dag var gerð breyting á vef Bahá'í heimildasafnsins, sem felst í því að nú verður hægt að birta nýþýddar ritningargreinar og töflur bahá'í helgiritanna á vefnum um leið og búið er að þýða þær og undirbúa fyrir útgáfu.
Þær 109 óútgefnu þýðingar sem birtast nú á vefnum í fyrsta sinn eru úrval úr ritum Bahá'u'lláh og 'Abdu'l-Bahá á ensku úr persneskum frumtextum. Nánar hér.