Nú þegar fæðingarhátíð Jesú Krists fer í hönd verður mér hugsað til þess dásamlega boðskapar sem Hann flutti og þau djúptæku áhrif sem þessi boðskapur ástar og náungakærleika hafði á heiminn.
Margir vina minna eru önnum kafnir við jólaundirbúningnum og þeir spyrja mig hvort bahá'íar trúi á Krist.
Það gerum við vissulega. Bahá'u'lláh segir að Kristur sé …
„Drottinn hins sýnilega og ósýnilega.“
Og í bréfi til kristins manns segir 'Abdu'l-Bahá:
„...að vera kristinn er að vera ímynd alls sem er gott og göfugt.“
Bahá'u'lláh skrifaði um Jesú Krist:
„Vita skalt þú að þegar Mannssonurinn fórnaði Guði anda sínum grét öll sköpunin sárum gráti. Með þeirri fórn öðlaðist hins vegar allt sem skapað er nýja hæfni. Vitnisburðinn um þetta má finna með öllum þjóðum eins og þú glögglega sérð. Dýpsta viska vitringanna, mesti lærdómur sem nokkur hugur hefur aflað sér, listirnar sem hæfustu hendur hafa skapað, áhrifamáttur hinna öflugustu valdsherra, eru aðeins birtingarmynd þess endurlífgandi krafts sem yfirskilvitlegur, allumvefjandi og geislandi andi Hans leysti úr læðingi.
Vér berum því vitni að þegar Hann kom í heiminn úthellti Hann ljóma dýrðar sinnar yfir allt sem skapað er. Hans vegna læknaðist hinn líkþrái af líkþrá öfughneigðar og fáfræði. Hans vegna fengu hinir óhreinlífu og vegvilltu græðingu. Vegna valds Hans, sem kom frá almáttugum Guði, opnuðust augu hinna blindu og sál syndarans helgaðist.
Á líkþrá má líta sem sérhverja blæju sem kemur á milli mannsins og viðurkenningar á Drottni, Guði hans. Hver sem leyfir sér að hyljast honum er að sönnu líkþrár og hans verður ekki minnst í ríki Guðs, hins máttuga og altignaða. Vér berum því vitni að með þeim mætti sem býr í orði Guðs voru hinir líkþráu hreinsaðir, sérhver sjúkdómur græddur, allir mannlegir veikleikar gerðir útlægir. Hann er sá sem hreinsaði heiminn. Sæll er sá sem hefur snúið sér til hans með geislandi ásjónu.“
Shoghi Effendi staðfestir auk þess trú bahá‘ía á Krist þegar hann segir:
„…Ef við leggjum einlægt mat á trú Bahá'u'lláh geta kenningar hennar aldrei farið í bága við og hvað þá síður gengið í berhögg við það áform og vald sem trú Jesú Krists var innblásin …
Hvað varðar stöðu kristindómsins skal því lýst yfir hiklaust og án nokkurra efasemda að guðlegur uppruni hans er skilyrðislaust viðurkenndur, að bahá’í trúin staðfestir afdráttarlaust stöðu Krists sem sonar Guðs og guðdómlegs boðbera og viðurkennir fyllilega guðlegan uppruna og innblástur guðspjallanna … Bahá'u'lláh nefnir höfund kristindómsins „Anda Guðs“, Honum er lýst sem þeim „sem birtist fyrir anda Heilags anda,” og Hann er jafnvel vegsamaður sem „innsti kjarni andans“. Móður hans er lýst sem “þeirri huldu, ódauðlegu og alfögru ásýnd.” Staða Sonar hennar er vegsömuð og sögð vera „staða sem hafin er yfir hugmyndir allra sem dvelja á jörðu... ”
Þótt við bahá‘íar höldum ekki upp á jólin eða helgidaga annarra trúarbragða á sama hátt og okkar eigin helgidaga þýðir það ekki að við trúum ekki á Krist (eins og þú sérð af tilvitnunum hér að ofan).
Að vera bahá‘í er að trúa á Jesú Krist af fullkominni vissu og þess vegna vil ég fyrir hönd bahá‘í bloggliðsins hér á www.bahaiblog.net óska kristnum fjölskyldum okkar og vinum um allan heim gleðilegra jóla!
Fyrir þau ykkar sem þetta lesa og ekki þekkja til bahá’í trúarinnar skal því bætt við að bahá‘íar trúa á það sem kallast „stighækkandi opinberun“. Í grundvallaratriðum þýðir það að Guð sendir boðskap sinn til mannanna á ýmsum tímum í sögunni með boðberum sínum sem innblásnir eru af Guði til að flyja mönnunum og þeim þjóðfélögum sem þeir eru sendir til boðskap og kenningar Guðs. Þess vegna viðurkenna baháíar guðdómlega stöðu Jesú Krists sem færði þeim tíma og því samfélagi sem Hann lifði í boðskap Guðs í samræmi við þarfir þess tíma og samfélags. Hið sama gildir um Búddha, Krishna, Móses, Múhameð, Bábinn og Bahá'u'lláh.
Naysan Naraqi