Í síðasta tölublaði Bændablaðsins, á blaðsíðu 40, er grein eftir Böðvar Jónsson um friðarmál. Greinin heitir „Heimur í heljargreipum“. Stuðst er við efni úr Friðarávarpi Allsherjarhúss réttvísinnar, æðstu stjórnstofnunar bahá'í trúarinnar. Greininni lýkur á tilvitnun í orð Bahá‘u‘lláh. Það var bréf Allsherjarhúss réttvísinnar nú í janúar um sögu og stöðu friðarmála sem varð kveikjan að þessari grein.
Hægt er að lesa blaðið á netinu. Sjá hér.