48. landsþingi bahá'ía á Íslandi lauk í dag, 28. apríl, 2019. Þingið var haldið í þjóðarmiðstöð bahá'ía að Kletthálsi 1, Reykjavík. Nítján fulltrúar víðs vegar af landinu sátu þingið ásamt meðlimum fráfarandi Andlegs þjóðarráðs. Einnig var hópur gesta viðstaddur. Nokkrir bahá'íar sem sóttu þingið voru spurðir: Hvernig finnst þér landsþingið?