Bahá'í útgáfan sendi í gær frá sér eftirfarandi tilkynningu:
Það er Bahá‘í útgáfunni mikil ánægja að tilkynna að ein ástfólgnasta og víðlesnasta tafla Bahá'u'lláh, Dalirnir sjö, kemur út í íslenskri þýðingu nú í vikunni í bók sem nefnist „Leitandinn á vegi Guðs.“ Ásamt henni eru í bókinni nokkrar töflur sem, ásamt Dölunum sjö, birtust í nýjum þýðingum í bókinni „The Call of the Divine Beloved“sem Allsherjarhús réttvísinnar lét gefa út í janúar á þessu ári. Allar þessar töflur stuðla að dýpri skilningi á boðskap Bahá'u'lláh og andlegri þýðingu hans fyrir þá sem leita sannleikans á vegferð sinni til Ástvinarins.
Nú í vikunni kemur líka út íslensk þýðing á barnabókinni „Sögur af Bábinum sem barni“ eftir Will van den Hoonard. Báðar þessar bækur verða til sölu á Sumarskólanum dagana 20.-22. júní. Hægt verður einnig að kaupa þessar bækur og panta hjá Bahá’í skrifstofunni, Kletthálsi 1.
Verðið á bókinni „Leitandinn á vegi Guðs“ er 2.500 kr. Verðið á barnabókinni er 1500 kr.