Myndband með svipmyndum frá tveimur síðustu dögum bahá'í sumarskólans árið 2019 í Reykjaskóla við Hrútafjörð. Jóhanna Jochumsdóttir var aðal fyrirlesarinn. Hún fjallaði meðal annars um andlega eflingu unglinga og sagði frá reynslu sinni af slíku starfi í Kanada, þar sem hún býr ásamt fjölskyldu sinni.