Þessi stafræna útgáfa bókarinnar „Við syngjum“ er ókeypis og öllum aðgengileg. Hér er slóðin á bókina: Við syngjum
Hægt er að hlaða bókinni niður í síma, tölvu, eða aðra miðla. Auðveldlega er hægt að finna ákveðið lag með því að smella á titil þess í efnisyfirlitinu. Til þess að þessi aðgerð virki þarf að hlaða niður í símann forriti sem les pdf skrár. Mörg slík forrit eru fáanleg á netinu. Ókeypis útgáfan af Adobe Acrobat reynist vel. Hún er fáanleg bæði fyrir Android og Apple síma.
Orðin „YouTube“ fyrir aftan titil lags merkir að það er til á YouTube. Með því að smella á YouTube merkið í bókinni, fer maður inn á staðinn þar sem lagið er á YouTube. Næstum því öll íslensku lögin í söngbókinni eru með skjátexta til að auðvelda fjöldasöng. Sum þeirra eru með söng og skjátexta, en önnur með undirleik og skjátexta. Í nokkrum tilfellum eru báðir valmöguleikarnir til staðar.
Einnig er hægt er að leita að lögum úr bókinni á lagalista (Playlist) inn á You Tube rásinni „Bahá'í samfélagið“. You Tube rásina er að finna á forsíðu Bahá'í vefsins: bahai.is.