Núverandi hnattræna heilsufarsógn hefur komið því til leiðar að margt fólk veltir fyrir sér framtíð síns þjóðfélags. Í síðustu viku skipulagði bahá'í samfélagið í Kazakhstan samtal á netinu meðal fræðimanna, embættismanna, fólks sem lætur sér annt um þjóðfélagsmálefni og fulltrúa trúarhópa til að velta því fyrir sér hvernig samstarf þessara aðila eykur einingu í þjóðfélaginu við núverandi aðstæður. Nánar á BWNS.org