Kínverska ríkisstjórnin sendi fyrir nokkru hjálpargögn vegna Covid-19 til Ítalíu sem voru merkt með tilvitnun úr bahá'í helgiritunum. Þeir hafa nú endurtekið leikinn. Á þessari sendingu til Bahrain stendur: "Svo öflugt er ljós einingarinnar að það getur upplýst allan heiminn". Þetta er ein af þekktustu setningunum úr ritum Bahá'u'lláh, en eining mannkyns er kjarninn í boðskap Hans.