Þrjú af undirstöðuritum baháʼí trúarinnar eru komin út í íslenskri þýðingu. Hið fyrsta erKitáb-i-Aqdas, helgasta bók Bahá’u’lláh. Aqdas er móðurbók baháʼí opinberunarinnar og hefur verið lýst sem „sáttmála framtíðarmenningar“ mannkynsins. Hún er höfuðuppretta baháʼí laga og stofnana og í henni fjallar Bahá’u’lláh um grundvallarreglur trúarinnar, siðfræði, dulspeki, félagslegar meginreglur og spádóma
Þá kemur út ritið Sáttmálinn en þar er að finna Bók sáttmálans (Kitáb-i-‘Ahd) og erfðaskrá ‘Abdu’l-Bahá.
Erfðaskrá ‘Abdu’l-Bahá er eitt af undirstöðuritum baháʼí trúarinnar og nátengd helgustu bók Bahá’u’lláh, Kitáb-i-Aqdas. Hún er ein af þremur stofnskrám baháʼí stjórnskipunar ásamt Töflu Karmels og Töflum hinnar guðlegu áætlunar. Í erfðaskránni er lagður grunnur að stofnunum baháʼí trúarinnar, tengsl þeirra skilgreind, skjaldborg slegin um réttindi allra manna og kveðið á um valdsumboð og skyldur. Erfðaskránni er því lýst sem stofnskrá heimssiðmenningar og mannréttindasáttmála alls mannkyns.
Mikilvægt er að sem flestir geti eignast þessar bækur og fengið þær í hendur sem fyrst og því hefur Þjóðarráðið ákveðið að söluverð á Kitáb-i-Aqdas verði aðeins 4000 kr. Þjóðarráðið ákvað einnig að landssjóður beri sendingakostnað út á land fram að Naw-Rúz þannig að verðið heimkomið verði það sama óháð búsetu. Samfélög eru hvött til að taka sig saman til að lágmarka flutningskostnað. Söluverð á síðara ritinu, Sáttmálinn, verður 2000 kr.
Panelists from Azerbaijan, Bahrain, Cambodia, and Kenya explore how unity in diversity is essential for fostering peace, co-hosted by the Bahá’í Chair for World Peace.
In Tonga, the 30th anniversary of Ocean of Light school reflects on how moral and spiritual qualities can be cultivated alongside academic learning in a single endeavor.