Nítján daga hátíð bahá'ía hefur verið bætt við lista yfir menningarfjársjóði Singapore. Listinn var settur saman að beiðni yfirvalda til að halda skrá yfir fjölbreytilega menningarflóru landsins.
Nýleg 19 daga hátíð sem haldin var á netinu. Peta Yang, meðlimur bahá'í samfélagsins, segir að hátíðin hafi gengt mikilvægu hlutverki meðan á faraldrinum hefur staðið. “Þessar reglubundnu samkomur eru mikilvægt meðal gegn einangrun.”
Bahá'í hátíð er “hátíð” bæna, samráðs og samveru og er haldin á 19 daga fresti í bahá'í samfélögum um víða veröld. Nánar á heimasíðu BWNS