Dagana 2.-5. apríl 2021 verður haldin hin árlega ráðstefna um réttlæti (Justice conference) sem fer fram í Hollandi. Vegna aðstæðna í heiminum var ákveðið að hafa ráðstefnuna á netinu í ár og mun það vonandi gefa fleirum tækifæri til að taka þátt sem áður höfðu ekki kost á því.
Það verða fyrirlesarar allsstaðar að úr heiminum með spennandi umræðuefnum tengdum réttlæti.
Á vefsíðu ráðstefnunnar er hægt að nálgast nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara ásamt fréttum og fleiru tengdu ráðstefnunni - www.justice-conference.com