Gleðilega Ridvánhátíð. Söguleg yfirlýsing Bahá'u'lláh átti sér stað árið 1863 í garði sem Hann kallaði Ridván, en það þýðir „paradís”. Garðurinn var á bökkum Tigrisárinnar, nálægt Bagdað. Bahá'u'lláh og hópur félaga Hans dvöldu í garðinum í 12 daga. Á þeim tíma kunngerði Hann jafnframt þær andlegu grundvallarkenningar sem eru kjarninn í boðskap Hans. Þær eru til marks um nýtt stig í þróun lífs á jörðinni. Ridvánhátíðin er álitin mesta gleðihátíð ársins meðal bahá'ía um allan heim.