SHAH ALAM, Malasíu — Bahá'í samfélög í Malasíu komu til aðstoðar þegar úrhelli olli miklum flóðum í ýmsum héruðum Malasíu í síðasta mánuði. Andleg svæðisráð notuðu bahá'í miðstöðvar til að safna og dreifa mat, fötum, hreinsiefnum og öðrum nauðsynjum og fjölskyldur um allt landið opnuðu heimili sín sem húsaskjól. Í mörgum tilfellum ferðuðust heilu fjölskyldurnar og hópar langar vegalengdir til hamfarasvæðanna til aðstoðar. Nánar hér.