Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Kjördæmaþing Kópavogs og Garðabæjar haldið í þjóðarmiðstöð


22. febrúar 2022 Höfundur: siá

 

 

 

Kjördæmaþing Kópavogs og Garðabæjar var haldið í bahá'í þjóðarmiðstöðinni í kvöld. Sjö manns mættu, fimm voru á staðnum og tveir á zoom. Að lokinni helgistund horfðu þátttakendur á stutta mynd frá Bandaríkjunum um bahá'í kosningar. Þrír fulltrúar voru kosnir til landsþings fyrir svæðið, þeir Halldór Þorgeirsson, Sigurður Ingi Ásgeirsson og Eysteinn Guðni Guðnason. Sjöfn Heiða Steinsson til vara. Alls greiddu 14 atkvæði og voru þau öll gild.

Að afloknum kosningunum gæddu viðstaddir sér á veitingum. Carl John Spencer stjórnaði síðan umræðum um málefni trúarinnar á Íslandi. Ýmislegt áhugavert kom þar fram. Meðal annars var rætt um starfið að Skógum í Þorskafirði, væntanlega ráðstefnu í Vigdísarhúsi, stofnanafundinn sem haldinn var um síðustu helgi, mikilvægi bæna, samstarfs og fórna fyrir Málstaðinn.

Eftir fundinn bauðst þáttakendum að fá bækur að láni úr bahá'í bókasafninu, og er það í fyrsta skipti sem það er gert.