Hafin eru réttarhöld viđ byltingardómstól í Teheran yfir sjö leiđtogum bahá’í samfélagsins í Íran sem setiđ hafa í fangelsi hátt á annađ ár og eiga yfir höfđi sér líflátsdóm fyrir „trúarspjöll“ og „ađ útbreiđa spillingu á jörđinni“.
Síđustu dagana hafa auk ţess á annan tug bahá’ía veriđ handteknir, sakađir um ađ hafa skipulagt fjöldamótmćlin í Teheran 27. desember síđastliđinn ţegar öryggissveitir skutu nokkra mótmćlendur til bana, ţar á međal bróđurson Husseins Mousavis, leiđtoga stjórnarandstöđunnar. Međal hinna handteknu er fyrrverandi ritari Shirin Ebadi, friđarverđlaunahafa Nóbels, en hún er nú er í útlegđ á Spáni. Ebadi var lögfrćđilegur ráđgjafi bahá’íanna sjö sem setiđ hafa í Evin fangelsinu í Teheran í tćp tvö ár án ţess ađ ţeim hafi formlega veriđ kynntar ákćrur. Fars fréttastofan íranska og málgögn stjórnarinnar halda ţví fram ađ hinir handteknu séu stuđningsmenn Mousavis og ađ vopn og skotfćri hafi fundist á heimilum ţeirra.
Talsmenn alţjóđlega bahá’í samfélagsins hjá Sameinuđu ţjóđunum í Genf segja ţessar ásakanir tilhćfulausar og lýsa yfir sérstökum áhyggjum af ţví ađ írönsk yfirvöld vilji međ ţessu gera bahá’í samfélagiđ ađ blóraböggli í inanlandsátökum og réttlćta ţyngstu refsingu sem írönsk lög kveđa á um yfir sjömenningunum. Međal ţeirra eru lćknar, kennarar og félagsráđgjafar sem unnu viđ ađ ađstođa fjölskyldur sem misst höfđu atvinnu og lifsviđurvćri vegna trúarskođana.
Frá ţví klerkstjórnin tók völd í Íran hafa rúmlega 200 bahá’íar veriđ líflátnir, ţar af 17 forystumenn samfélagsins. Um 50 bahá’íar bíđa nú dóms í írönskum fangelsum.
Félags- og mannréttindanefnd Sameinuđu ţjóđanna samţykkti fyrir skömmu međ yfirgnćfandi meirihluta atkvćđa harđorđustu yfirlýsingu gegn mannréttindabrotum í Íran sem Sameinuđu ţjóđirnar hafa látiđ frá sér fara síđan byltingin var gerđ í Íran 1979. Kanada lagđi fram ályktunina ásamt 42 öđrum löndum, ţar á međal Íslandi. Ţar er sérstaklega fjallađ um árásir á bahá’ía í ríkisfjölmiđlum og stóraukiđ eftirlit lögreglu og leyniţjónustu sem felur m.a. í sér heimildir til ađ handtaka bahá’ía hvenćr sem er og meina ţeim um skólavist og atvinnu.
Bani Dugal, ađalfulltrúi alţjóđlega bahá’í samfélagsins hjá Sameinuđu ţjóđunum, segir ađ ályktunin hafi sent ákveđin skilabođ um ađ alţjóđasamfélagiđ muni ekki standa hjá og horfa ţegjandi á írönsk stjórnvöld fremja brot af ţessu tagi. Dugal segir ađ Allsherjarţingiđ hefur bent á fjölmörg brot gegn óbreyttum írönskum ţegnum, ţar á međal pyndingar, misbeitingu valds, undirokun kvenna og stöđuga mismunun gegn minnihlutahópum, ekki síst bahá’íum sem eru stćrsti trúarlegi minnihlutahópur landsins.
Frá ţví íslamska lýđveldiđ Íran var stofnađ hafa um tvö hundruđ bahá'íar veriđ líflátnir en tugir ţúsunda hafa misst atvinnu eđa neyđst til ađ flýja heimalandiđ. Ungum bahá'íum hefur veriđ neitađ um inngöngu í háskóla og framhaldsskóla og fólk sem komiđ var á eftirlaunaaldur hefur veriđ svift eftirlaunum og ellilífeyri. Í leyniskjölum írönsku stjórnarinnar sem Mannréttindanefnd SŢ fékk í hendur og lét birta áriđ 2006 er ađ finna áćtlun um upprćtingu bahá'í samfélagsins í Íran međ langtímaađgerđum sem međal annars miđa ađ ţví ađ fá ţá til ađ ganga af trúnni og játast íslam.
Hćgt er ađ fylgjast međ nýjustu fréttum af gangi mála á alţjóđlegum fréttavef bahá‘ía á slóđinni http://news.bahai.org/