Fréttir
Erlent - nánar
Tilkynningar
Erlent 29-06-2010 15:15
Bahá'í heimili brennd í írönsku þorpi
Bahá'í heimili brennd í írönsku þorpi
Farsímamyndir frá vegfarendum.

GENF – Heimili um 50 bahá’í fjölskyldna í Ivel, afskekktu þorpi í norðurhluta Írans voru nýverið eyðilögð í herferð sem hefur það að markmiði að reka bahá’íana af svæðinu. Íbúar sem æstir höfðu verið upp af hópum fjandsamlegum bahá’í samfélaginu hindruðu almenna umferð til þorpsins en hleyptu trukkum og að minnsta kosti fjórum vinnuvélum til að jafna húsin við jörðu.

Farsímamyndskeið sem vegfarendur tóku og írönsk mannréttindasamtök hafa birt á netinu sýna að því er virðist nokkur hús sem hafa verið rifin, og elda eftir íkveikju.

Þessi eyðilegging er nýjasti liðurinn í langvarandi herferð sem nýtur blessunar yfirvalda á svæðinu og beinist að allri starfsemi bahá’ía. „Þeim er ekki leyft að eiga samskipti við múslima eða jafnvel rétta vinum og nágrönnum hjálparhönd,“ segir Diane Alá’í, fulltrúi Alþjóðlega bahá’í samfélagsins hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf. „Jafnvel minnstu velviljaverk – svo sem að færa fólki blóm á spítala eða gjafir á munaðarleysingjaheimili – slíkt er túlkað sem aðgerðir gegn yfirvöldum.“

Flest heimili bahá’íanna í Ivel hafa staðið tóm síðan íbúarnir flýðu eftir ofbeldisverk gegn þeim eða í kjölfar nauðungaflutninga á vegum stjórnvalda. Sem dæmi má nefna að sex hús voru brennd árið 2007.

Ivel er afskekkt þorp í Mazdaranhéraði í norðurhluta Írans, um 90 km frá borginni Sari. „Bahá’íar hafa búið á þessu svæði í yfir 100 ár og á árum áður var þar stórt samfélag bahá’ía,“ sagði Diane Alá’í. „En árið 1983, nokkrum árum eftir írönsku byltinguna, voru a.m.k. 30 fjölskyldur á þessu svæði sendar burt í rútum og þær gerðar útlægar.“ „Síðan þá hafa þær reynt að leita réttar síns án árangurs en snúið heim á sumrin til að ná uppskeru sinni,“ sagði hún.

Daginn eftir að skemmdarverkin voru framin var bahá’í karlmaður sem heimsótti vettvanginn ásamt fjölskyldu sinni til að ganga frá uppskerunni barinn og svívirtur af öðrum íbúum. Á undanförnum árum hafa þeir sem reyna að flæma bahá’íana í burtu ráðist á þá þegar þeir hafa reynt að koma heim til að endurbyggja eða gera við eignir sínar.

Þrálátur áróður stjórnvalda gegn bahá’íum í öllum fjölmiðlum – auk aðgerðaleysis opinberra stafsmanna í bæjum og þorpum – hafa haldið áfram að kynda undir hatri gegn bahá’íum á svæðinu og um allt Íran, sagði Diane ‘Alá’í. „Þessi nýjasta aðgerð sýnir hvernig yfirvöld hafa gersamlega látið undir höfuð leggjast að standa við skyldur sínar að verja bahá’íana og trúfrelsi þeirra,“ sagði hún.

Meðlimir bahá’í samfélagsins hafa ítrekað lagt fram kvartanir við stjórnvöld á svæðinu, þ.á.m. við héraðsstjórann í Sari, bæði fyrir og eftir nýjust atburði. Í öllum tilvikum var vitneskju um skemmdarverkin og ástæðu þeirra hafnað.

Þótt fréttir um þessa atburði hafi fyrst birst á ýmsum persneskum vefsíðum á föstudaginn, tókst Alþjóðlega bahá’í samfélaginu ekki að staðfesta upplýsingarnar fyrr en í gær. Nýjustu fregnir herma að 90 prósent allra bahá’í heimila á svæðinu hafi verið eyðilögð.

[Sjá fréttatilkynningu Alþjóðlega bahá‘í samfélagsins]
Til baka





Um vefinn
Tæknilegar upplýsingar varðandi vefinn og staða hans.

Opinber vefur bahá'í samfélagsins á Íslandi - Andlegt þjóðarráð bahá'ía á Íslandi - Öll réttindi áskilin.
Fréttirnar á þessari síðu eru unnar á vegum Andlegs þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi.
Athugasemdir og ábendingar sendist skrifstofu Bahá'í samfélagsins: nsa@bahai.is

Tilvísunarslóð: