GENF – Heimili um 50 bahá’í fjölskyldna í Ivel, afskekktu þorpi í norðurhluta Írans voru nýverið eyðilögð í herferð sem hefur það að markmiði að reka bahá’íana af svæðinu. Íbúar sem æstir höfðu verið upp af hópum fjandsamlegum bahá’í samfélaginu hindruðu almenna umferð til þorpsins en hleyptu trukkum og að minnsta kosti fjórum vinnuvélum til að jafna húsin við jörðu.
Farsímamyndskeið sem vegfarendur tóku og írönsk mannréttindasamtök hafa birt á netinu sýna að því er virðist nokkur hús sem hafa verið rifin, og elda eftir íkveikju.
Þessi eyðilegging er nýjasti liðurinn í langvarandi herferð sem nýtur blessunar yfirvalda á svæðinu og beinist að allri starfsemi bahá’ía. „Þeim er ekki leyft að eiga samskipti við múslima eða jafnvel rétta vinum og nágrönnum hjálparhönd,“ segir Diane Alá’í, fulltrúi Alþjóðlega bahá’í samfélagsins hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf. „Jafnvel minnstu velviljaverk – svo sem að færa fólki blóm á spítala eða gjafir á mun ...