Hafin eru réttarhöld viđ byltingardómstól í Teheran yfir sjö leiđtogum bahá’í samfélagsins í Íran sem setiđ hafa í fangelsi hátt á annađ ár og eiga yfir höfđi sér líflátsdóm fyrir „trúarspjöll“ og „ađ útbreiđa spillingu á jörđinni“.
Síđustu dagana hafa auk ţess á annan tug bahá’ía veriđ handteknir, sakađir um ađ hafa skipulagt fjöldamótmćlin í Teheran 27. desember síđastliđinn ţegar öryggissveitir skutu nokkra mótmćlendur til bana, ţar á međal bróđurson Husseins Mousavis, leiđtoga stjórnarandstöđunnar. Međal hinna handteknu er fyrrverandi ritari Shirin Ebadi, friđarverđlaunahafa Nóbels, en hún er nú er í útlegđ á Spáni. Ebadi var lögfrćđilegur ráđgjafi bahá’íanna sjö sem setiđ hafa í Evin fangelsinu í Teheran í tćp tvö ár án ţess ađ ţeim hafi formlega veriđ kynntar ákćrur. Fars fréttastofan íranska og málgögn stjórnarinnar halda ţví fram ađ hinir handteknu séu stuđningsmenn Mousavis og ađ vopn og skotfćri hafi fundist á heimilum ţeirra.
Talsmenn alţjóđlega bahá’í ...