Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Barnakennsla


Börn í bahá'í barnakennslu í Reykjanesbæ
Börn í bahá'í barnakennslu í Reykjanesbæ

 

„Lítið á manninn sem námu fulla af ómetanlegum gimsteinum. Aðeins menntun getur fengið hana til að opinbera fjársjóði sína og gert mannkyni kleift að njóta góðs af þeim“ - Bahá'u'lláh

 

Börnin eru framtíð samfélagsins og því líta bahá’íar svo á að andleg uppfræðsla þeirra sé mikilvægasta þjónustan sem hægt er að veita. Bahá’í samfélagið býður upp á barnakennslu sem öllum stendur til boða, þar sem hægt er að koma því við.

Barnakennsla í Reykjavík árið 2018

Barnakennsla í Reykjavík árið 2018

Tilgangur kennslunnar er að hjálpa börnunum að tileinka sér dyggðir og laða fram þá ómetanlegu gimsteina sem í þeim búa. Kennslan felur í sér ýmiss konar lærdómsþætti: Tilvitnanir eru lagðar á minnið, lög sem tengjast námsefninu eru sungin, sögur eru sagðar, farið er í leiki og myndir eru litaðar eða teiknaðar.

Kennararnir hafa hlotið sérstaka þjálfun, sem hjálpar þeim að auka skilning sinn á andlegum meginreglum varðandi uppfræðslu barna.

Ef þú vilt að barnið þitt fái tækifæri til að sækja þessa kennslu, hafðu þá samband við bahá'ía á þínum stað eða bahá'í skrifstofuna, Kletthálsi 1. Síminn þar er 567 0344. Þú getur líka sent okkur tölvupóst á netfangið: bahai[hjá]bahai.is

 

Opið hús á zoom. Erna Magnúsdóttir fjallar um andlega og efnislega menntun barna.

 

Stafróf bahá'í barnanna

Bók fyrir ung börn eftir Andreu Hope. Íslenskur texti.

 

 Ridvángarðurinn - saga fyrir börn eftir Alhan Rahimi

Með íslensku tali. Lesari er Birna Ragnarsdóttir.