Slangur af fólki úr Fellahverfi og víðar að mætti á fyrstu fjölskylduhátíðina sem bahá'íar skipulögðu í dag í fjölskyldumiðstöðinni í Gerðubergi.
Í upphafi samkomunnar lék Dicky Fusco aðstoðarráðgjafi á ukelele og fékk alla til að syngja lagið We are drops (Við erum dropar), fyrst á ensku og svo á íslensku. Eftir að Ashild, ung bahá'i kona frá Noregi, hafði boðið fólkið velkomið og útskýrt hver tilgangur hátíðarinnar væri, að sameina fólk í hverfinu sem eina fjölskyldu og hvetja það til að vinna saman að eflingu þess með því að nýta sér hugsjón Bahá'u'lláh um einingu mannkyns, dreifði hún pappírsmiðum með þessari tilvitnun eftir hann: "Hægt er að bæta heiminn með hreinum og góðum gerðum og með lofsverðu og sæmandi framferði" og bað viðstadda að hugleiða innihaldið. Einn þátttakandinn var svo hrifinn af tilvitnuninni sem var krufin til mergjar að hann samdi í snatri um hana vísu. Á meðan fullorðna fólkið nam ritninguna sáu tveir kennarar um að fræða börnin. Í lokin skreyttu ungir sem aldnir pappírsstranga með myndum innblásnum af ritningu dagsins.
Þessi fyrsta fjölskylduhátíð tókst svo vel, að stefnt er að því að halda slíkar hátíðir reglulega á þessum stað.